SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3127)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Kveðið í gljúfrumFyrsta ljóðlína:Vegmóðum var mér úthýst
Höfundur:Jóhann Gunnar Sigurðsson
bls.135–136
Viðm.ártal:≈ 1900
1. Vegmóðum var mér úthýst,– válega hvein í tindum – bölvaði ég þá bónda, börnunum hans og öllu; dimmdi óðum af degi, dundi foss í gili; gekk ég án nokkurrar glætu, gekk ég í opinn dauða, gekk ég í sjálfan dauða.
2. Gekk ég í gljúfrin svörtu,gínandi sprungan tók mig, bein mín lágu þar brotin, blóð mitt litaði stalla. Lá ég einn og óhægt í eilífu svarta myrkri; en beinin mín brotnu hvítna, þau bein hafa verið að meini, þau bein skulu verða að meini.
3. Leitað var mín lengi,langt og skammt var farið; brá ég bleikum grönum, beindi feigra sporum. Fá vil ég nítján til fylgdar, förum tuttugu saman; nú eru orðnir úti átján í þessu gili, átján í djúpu gili.
4. Þegar dimmir af degi,dynja fossar í gili, vegmóðum verður úthýst, válega hvín í tindum, þá færist ég aftur í auka og alla hingað teygi; gnauðar þá kaldur gustur í gljúfrunum mínum þröngu, í gljúfrunum okkar þröngu. |