Smaladrengurinn | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Smaladrengurinn

Fyrsta ljóðlína:Út um græna grundu
bls.51
Bragarháttur:Fjórar línur (tvíliður) AbAb
Viðm.ártal:≈ 1875
1.
Út um græna grundu
gakktu, hjörðin mín.
Yndi vorsins undu.
Eg skal gæta þín.
2.
Sól og vor ég syng um,
snerti gleðistreng.
Leikið, lömb, í kringum
lítinn smaladreng.