Söngurinn | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Söngurinn

Fyrsta ljóðlína:Söngurinn göfgar, hann lyftir í ljóma
bls.781–782
Viðm.ártal:≈ 1900
1.
Söngurinn göfgar, hann lyftir í ljóma
lýðanna kvíðandi þraut.
Söngurinn vermir og vorhug og blóma
vekur á köldustu braut.
Söngurinn yngir, við ódáins hljóma
aldir hann bindur og stund.
Hisminu breytir í heilaga dóma,
hrjóstrinu í skínanda lund.
2.
Söngurinn harðúð og hjáræmi eyðir,
hófsemi kennir og mát,
stríðólmu kraftana stillir og leiðir,
stöðvandi óstjórn og fát.
Söngurinn hrífur til drengskapar dáða,
dyggðar og sigurs og hróss,
söngurinn fjörgar til framkvæmdar ráða,
frelsis og hugsjóna ljóss.
3.
Fornaldarsöngur með sögunnar draumi
syngur um kvöldroða-ljós;
nútímans hróður með hreimfyllri straumi
hrynur að framtíðar-ós.
Aldirnar mætast í æskunnar blóði,
ódáins- stærandi –brag:
Dánir og lifandi andar í óði
efalaust faðmast í dag.