Jólavers | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Jólavers

Fyrsta ljóðlína:Þykir hér dauft um þessi jólin
bls.96
Bragarháttur:Sex línur (tvíliður) ferkvætt AbAbcc
Viðm.ártal:≈ 1875
Tímasetning:1872
Þykir hér dauft um þessi jólin;
þjóðir ei messu nokkra fá;
ununar gengur ítur sólin
ofan í djúpan harma sjá,
en dimmum svifar deyfðar blæ
dróttir yfir i hverjum bæ.

Matthías prestur, þrautum þjáður,
þungu má reyna kvala bönd,
liggur á beði hann nú hrjáður,
horfandi upp á dýrðar lönd.
Þögnuð er braga gígjan góð
guðs hjá ástkærum letra bjóð.

Hans nú og rósin röðuls voga,
reifuð sóma um lifsins tíð,
brennur í sjúkdóms bitrum loga,
bráðla sem allan hryggir lýð.
Lausnarands fyrir dapran deyð
drottinn vor bæti þeirra neyð.