Áfram | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Áfram

Fyrsta ljóðlína:Enn vér ritum ártal nýtt
Viðm.ártal:≈ 1850–1875
1.
Enn vér ritum ártal nýtt;,
árin frá oss skunda.
Hverju gegnir? Hvað er títt?
Hvert á nú að stunda?
Áfram! kveður aldar hljóð.
Alla svo skal hvetja.
Áfram, drengir! áfram þjóð!
Eigi' er boðin seta.
2.
Árið fer ei einsamalt;
upp með því og renna
harðindin, sem hauðrið kalt
heljar greipum spenna;
kláðinn syðra' og sauðapest,
samkvæmt gömlum vana;
og það, sem er allra verst,
ójöfnuður Dana.
3.
Þetta víst mun allt í ár
að oss þjarma' og fleira,
mörg oss vilja meiða sár,
margur fjötur reyra.
Náttúran og naprir menn
nísta' oss bitru spjóti.
Henni' og þeim vér þurfum senn
þreyta rönd í móti.
4.
Þó skal ekki hopa' á hæl,
hvergi undan snúa.
Áfram! þótt sé eigi dæl
auðnan við að búa.
Áfram! segjum enn sem fyr,
aflið reynda þróast.
Áfram segjum! „Öndverðir
ernir skulu klóast.“
5.
Höfum gætur hollar á
hverju voru efni!
Látum engan óvin ná
að oss vega' í svefni!
Áfram — kallar ársbrún ný —
eldraun snarpa gegnum!
Áfram! hrindum af oss því
angri, sem vér megnum!