Dalur nyrðra | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Dalur nyrðra

Fyrsta ljóðlína:Björk áttu í hlíðum,
Heimild:Kvæði.
bls.210
Bragarháttur:Tólf línur (tvíliður) OaOBOaOBOoOB
Viðm.ártal:≈ 1975
Flokkur:Náttúruljóð
Björk áttu í hlíðum,
blágnípótt fjallaskörð,
sóleyjar í túni,
ó sumargræni dalur.

Og blásturinn dansar
inn brimölduljósan fjörð
norðan úr höfum,
heilnæmur og svalur.

Þó halda sumir
sunnanlands, að þú
kunnir að reynast
klækjarefum falur.