Eikarlundurinn * | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Eikarlundurinn *

Fyrsta ljóðlína:Eg gekk einn morgun árla
Bragarháttur:Sjö línur (tvíliður) þríkvætt AbAbOcc
Viðm.ártal:≈ 1575
1.
Eg gekk einn morgun árla
út að skemmta mér.
Dagur gaf drengjum varla
dýra birtu af sér.
Framhjá fögrum lundi
ferðast gerði eg þá,
furðu fagur var sá.
2.
Miðjum morgni nærri
mundi eg aftur gá.
Var þá hálfu hærri,
eg horfði lundinn á.
Laufið og greinir grænar
greiddust út svo beint.
Víst var veðrið hreint.
3.
Dagmálastund án stríðu
þeim stoltum lundi nær
stóð eg þá beint með blíðu
því blómstrin voru mér kær.
Laufið og greinir grænar
greiddust yfir mig út.
Eg hafði ei harmasút.
4.
Á hádegi lauf með listum
það leist mér grænt að sjá,
með firna fögrum kvistum,
furðu vænt að ná.
Í öllum blóma sínum
allur lundurinn stóð.
Hans var hefðin góð.
5.
Nóni nærri mundi
nálega veðrið hvasst,
dálegur stormur dundi,
dreifðist laufið fast,
næfur og börkinn bæði
burtu hafði með sér
svo ei var meir efter.
6.
Stofnar einir stóðu,
þar studdist eikin við.
Hvar eru þá greinir góðu
er girntist fyrða lið?
Í burtu sem mest þeir máttu,
þess minnist hver eð veit,
svo enginn eftir leit.