Sprettur | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Norður fjöll (ferðakvæði) 3

Sprettur

NORÐUR FJÖLL (FERÐAKVÆÐI)
Fyrsta ljóðlína:Ég berst á fáki fráum
Höfundur:Hannes Hafstein
bls.47–48
Bragarháttur:Sjö línur (tvíliður+) AbAbcOc
Viðm.ártal:≈ 1875
Tímasetning:1882

Skýringar

Birtist í Verðandi, 1. árg. 1882, bls. 131–132.
Ég berst á fáki fráum
fram um veg.
Mót fjallahlíðum háum
hleypi ég.
Og golan kyssir kinn.
Og á harða, harða spretti
hendist áfram klárinn minn.

Það er sem fjöllin fljúgi
móti mér,
sem kólfur loftið kljúfi
klárinn fer.
Og lund mín er svo létt,
eins og gæti’ eg gjörvallt lífið
geisað fram í einum sprett.

Hve fjör í æðar færist
fáknum með!
Hve hjartað léttar hrærist!
Hlær við geð,
að finna fjörtök stinn!
Þú ert mesti gæðagammur,
góði Léttir, klárinn minn!

Hve hátt hann lyftir hnakka,
hvessir brá,
og hringar hreykinn makka.
Horfið á !
 Sko, faxið flaxast til!
Grundin undir syngur söngva
slétt við Léttis hófaspil.

En læg nú sprettinn Léttir,
líttu á,
við eigum brekku eftir,
hún er há.
Nú æjum við fyrst ögn
áður söng og hófa hljóði
förum rjúfa fjallaþögn.