Jónas Hallgrímsson | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Jónas Hallgrímsson

Fyrsta ljóðlína:Döggfall á vorgrænum viðum
bls.8
Bragarháttur:Átján línur (tvíliður) AAAbCCCbDDDeFFFeFe
Viðm.ártal:≈ 1950
Tímasetning:1944

Skýringar

Birtist í ljóðabókinni Kvæði 1944.
Döggfall á vorgrænum viðum
veglausum heiðum,
sólroð á svölum og góðum
suðrænublæ.

Stjarnan við bergtindinn bliknar,
brosir og slokknar,
óttuljós víðáttan vaknar
vonfrjó og ný.

Sól rís úr steinrunnum straumum,
stráum og blómum,
hjörðum og söngþrastasveimum
samfögnuð býr.

Ein gengur léttfætt að leita:
lauffalin gjóta
geymir nú gimbilinn hvíta,
gulan á brár.

Hrynja í húmdimmum skúta
hljóðlát og glitrandi tár.