Orð verða ljóð | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Orð verða ljóð

Fyrsta ljóðlína:Orðin þau á mig leita
bls.11. árg. bls. 98
Bragarháttur:Átta línur (tvíliður) AbAbCdCd
Viðm.ártal:≈ 2000
Tímasetning:15. des 2004

Skýringar

Ort 15. des 2004
Orðin þau á mig leita
óróleg, stór og smá.
Ég reyni þeim ró að veita
og raða sem best ég má.
Og orðin þau verða að óði
hvar una þau dável sér.
Og í þessu litla ljóði
liggja þau fyrir þér.