Síðasta sumarkvöld | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Síðasta sumarkvöld

Fyrsta ljóðlína:Bliknar kvöldsins bjarmaglóð
bls.69
Bragarháttur:Ferskeytt (ferskeytla)
Viðm.ártal:≈ 1925
Flokkur:Náttúruljóð
1.
Bliknar kvöldsins bjarmaglóð,
bjartur, hlýr og fagur
hnígur þar á heljarslóð
hinsti sumardagur.
2.
Stígur nótt á stjörnuvöll.
Stara fold og lögur.
Raknar sundur eilífð öll
endalaus og fögur.