Góuvísur | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Góuvísur

Fyrsta ljóðlína:Mig við óar afli því
bls.72–74
Bragarháttur:Ferskeytt – hringhent (hringhend ferskeytla) – hringhenda
Bragarháttur:Ferskeytt – oddhent – hringhent
Viðm.ártal:≈ 1925
Flokkur:Náttúruljóð

Skýringar

Síðasta vísan er oddhend hringhend.
1.
Mig við óar afli því,
um það þó ég syngi.
Nú er Góa gengin í
garð með snjóa kyngi.
2.
Feikna hleður fönn á slóð
fyllir geðið kvíðinn.
Úti kveður kynjaljóð
kafaldsveðurhríðin.
3.
Sveipa náir sveit og lá
svella gljái breðinn.
Æpa dáin ýlustrá
út við skjáinn freðinn.
4.
Fer um hauður fugla nauð,
finnst ei auður skári.
Ernir snauðir ei fá brauð,
allt er í dauðans fári.
5.
Lyngs á móum raskar ró
rjúpur tóa kringum.
Heim sig þó að húsum dró
hópur af snjótittlingum.
6.
Muntu banna moðsallann?
Mettast grannar þjáðir.
Drottinn fann þeim feril þann,
þeir flýðu á manna náðir.
7.
Klæðir hríð í kalda spjör
kosta-hlíð að vana.
Seinna blíðu blessuð kjör
blómum skrýða hana.
8.
Sælu-langan sumarsins
svifið þangað hefur
sem und vanga vetrarins
vorsins angan sefur.
9.
Bergs af stalli fjalli frá
fossa gjalla hljómar.
Hátt til allra, um loft og lá,
lífsins kalla ómar.
10.
Gróa hlíðar, grænka tún,
gyllir víðir haga.
Sólin líður seint und brún
sumars blíða daga.
11.
Síga metin sólin lét,
svella fletin þíðir.
Gengin vetrar gleymast hret,
gefast betri tíðir.