Skarphéðinn í brennunni [endanleg útgáfa höfundar] | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Skarphéðinn í brennunni [endanleg útgáfa höfundar]

Fyrsta ljóðlína:Buldi við brestur
Höfundur:Hannes Hafstein
bls.60
Bragarháttur:Fornyrðislag
Viðm.ártal:≈ 1925
Tímasetning:1882

Skýringar

Kvæðið eins og Hannes gekk frá því sjálfur til útgáfu í endanlegri gerð og birtist í ljóðasafni hans 1921 (önnur prentun, 1925). Stafsetning er hér samræmd til nútímahorfs.
Sjá einnig kvæðið eins og það birtist í upphaflegri gerð í Verðandi 1882.
Buldi við brestur, 
brotnaði þekjan; 
reið niður rjáfur 
og rammir ásar. 
 
Skall yfir eldhafið ólgandi, logandi, 
eldvargar runnu fram hvæsandi, sogandi. 
Reykurinn glóðþrunginn gaus upp úr kafinu.
Gaflaðið eitt stóð sem klettur úr hafinu. 
 
Nár var þá Njáll 
nár var Bergþóra. 
Burtu var Kári, 
brunninn Grímur, 
Höggvinn Helgi — 
Héðinn stóð einn 
tepptur við gaflað 
og glotti við tönn. 

Gulrauðar glóðir 
glampa og braka.
Blóðroðin birta 
blaktir um garpinn.

Skín hún á andlitið skarpfölt og tannirnar, 
skiptandi blæ, meðan logagráðs hrannirnar
flétta úr eldtungum umgjörðir titrandi 
utanum hetjuna, bjartar og glitrandi. 
 
Hélt hann á rammri 
Rimmugýgi: 
„Hvað er nú, öx mín, 
hitnar þér nokkuð? 
þú skyldir eigi 
svo þurrmynnt vera, 
væri í annað 
en eld að bíta.“ 

Gunnspáir glóðu
geislar á hyrnu
stirndi í stál 
og stæltar eggjar. 

Skarphéðinn klappaði skínanda stálinu: 
„Skil ég þig, öx mín, ber kveðjur úr bálinu.“ 
Hefndþrungna bengýgi hóf upp og lét’ hana 
hverfa í gaflaðið, langt upp á fetana.
 
Leit hann á eldbranda 
aðfallandi.
Hvað var í huga
Höskulds bana? 
Kominn bónleiður
til búðar hinstu
eldibrand tók sér
í axar stað.

Aleinn örlögum
ofurseldur
horfðist í augu
við eld og dauða. 

Færðust að logarnir brestandi, brakandi, 
báldrekar skriðu fram eldmakka skakandi, 
lögðust að fótum hans, fæturna sleikjandi 
flakandi tungum, og glóðmökkum reykjandi. 
 
Hnykluðust vöðvar
á herðum þreknum, 
efldum er armi
upp hann lyfti,
losaði kyrtil
frá loðnu brjósti, 
helrún brenndi þar:
inn helga kross.
 
Beit svo á kampinn, og krosslagði armana, 
karlmennskuró sló um ennið og hvarmana. 
Ljómandi kring um hann logarnir kvikuðu, 
ljósgeislar fagnandi á honum blikuðu. 
 
Dimmt er í skála, 
dökkir mekkir 
hefjast úr ösku 
og hrundum rústum. 
Inni við gaflað 
í ösku stendur 
Héðinn örendur 
með opnum sjónum. 
Heyrst ei hafði 
hósti né stunur.