Kvæði um konur liðinna alda | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Kvæði um konur liðinna alda

Fyrsta ljóðlína:Ó grein þú mér eitt: hvar á heimsins hring
Höfundur:Francois Villion
bls.76
Viðm.ártal:≈ 1950

Skýringar

Athugasemd þýðanda, Jóns Helgasonar:

Það er sjálfsagður hlutur að þegar Villon minnist í kvæði fornra kvenna og frægra sem nú eru löngu horfnar af sjónarsviðinu, nefnir hann þær til sem Frökkum voru kunnar úr sínum sögum og kveðskap. En oss yrðu þær ekki annað en nöfnin tóm. Þessvegna er kvæðinu hér bylt til og sett inn nöfn úr íslenzkum sögum.
1.
Ó grein þú mér eitt: hvar á heimsins hring
mun Hallgerður nú, sú er vélti Gunnar,
og Gunnlöð, sem átti við Óðin þing
uns upp voru teygaðir Suttungs brunnar,
og Sigrún, og drambláta Sedentíana,
er Sigurði þögla leist hverri betri,
og Hervör, sem vitjaði haugs meðal Dana?
Já, hvar skal nú mjöllin frá liðnum vetri?
2.
Og Guðrún, sem lagði á banabing
sinn bónda með firnum á Húnlandi sunnar,
og önnur hér nær, sem við íþrótt slyng
á örlagastundu lét garnvindur spunnar,
og Oddný, sem sturluð og yndisvana
lét undir sér teima (svo stár í letri)
og harmaði vin sinn er hreppti bana?
Já, hvar skal nú mjöllin frá liðnum vetri?
3.
Og Ísold hin bjarta, sem allt í kring
af ást hennar gerast nú sögur kunnar,
og Kráka – þó bæri hún klæðin ring
á konungsbeð leiddu’ hana hjörva runnar,
og Gunnhildur drottning, og gýgurin Brana,
og Gyða, sem ekkja réð jarla setri,
og Hlöðvis dóttir í hami svana?
Já, hvar skal nú mjöllin frá liðnum vetri?
Nú hugsa þú málið og hirð ekki’ að flana
ef hyggst þú að svara því spurningartetri,
og nú skalt þú enn fá að heyra hana:
Já, hvar skal nú mjöllin frá liðnum vetri?


Athugagreinar

Stælt eftir François Villon