Háfjöllin | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Háfjöllin

Fyrsta ljóðlína:Þú, bláfjalla geimur með heiðjöklahring
bls.133
Viðm.ártal:≈ 1875
Flokkur:Náttúruljóð
1.
Þú, bláfjalla geimur með heiðjöklahring,
um hásumar flý eg þér að hjarta.
Ó, tak mig í faðm, minn söknuð burt eg syng
um sumarkvöld við álftavatnið bjarta.
2.
Þín ásjóna, móðir, hér yfir mér skín
með alskærum tárum kristals dagga,
und miðsumars himni sé hvílan mín.
Hér skaltu, Ísland, barni þínu vagga.
3.
Hér andar guðs blær og hér verð eg svo frjáls,
í hæðir eg berst til ljóssins strauma,
æ lengra, æ lengra að lindum himinbáls,
uns leiðist eg í sólu fegri drauma.