Væri ég aðeins einn af þessum fáu | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Væri ég aðeins einn af þessum fáu

Fyrsta ljóðlína:Ef ég aðeins gæti
bls.221
Viðm.ártal:≈ 1900
1.
Ef ég aðeins gæti
unnið stórar þrautir,
stigið föstum fæti
fram á huldar brautir,
gæti ég rakið lífsins leyndu þætti,
látið hjörtu slá með orðsins mætti,
tryði ég mínum ljúfu leiðsludraumum.
2.
Líkt og leiftrið bjarta
loftið regnvott klýfur,
eða óspillt hjarta
ástin fyrsta hrífur,
þannig skáldin allt í einu vinna
alla þá sem lífsins hjartslátt finna,
væri ég aðeins einn af þessum fáu.