Húsbruni | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Húsbruni

Fyrsta ljóðlína:Það stóð þarna á grundinni hólnum hjá
bls.161–162
Bragarháttur:Sex línur (tvíliður) aBaaBB
Viðm.ártal:≈ 1900
1.
Það stóð þarna á grundinni hólnum hjá
og hló út úr fjállaskugga,
með fána á stöng og fálkann á;
hve fallegt og ungt var það til að sjá
með glampandi þil og glugga!
2.
En haustnótt eina, þá húm var svart;
um hálsa, um grundir og voga
þar gerðist á svipstundu blossandi bjart.
Frá bæjunum næstu kom fólkið margt.
Þá stóð allt í ljósum loga.
3.
Þú spyrð hvort það væri vátryggt. – Nei.
Hvort væri’ ekkert fémætt þar grafið,
sem geymdist? – í rústirnar gróf ég ei,
en gekk strax í burtu, sté á fley
og hélt svo langt útyfir hafið.
4.
Svo byggði þar annar bæinn sinn
en bjó að því skammar stundir.
Hann var ekki tryggur, völlurinn.
Þar vaknaði gamli eldurinn
og jafnaði garðinn við grundir.
Hann gaus upp í rústunum — undir.