SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3127)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Pontus rímur 1Pontus rímur – fyrsta ríma
PONTUS RÍMUR
Bálkur:Pontus rímur
Fyrsta ljóðlína:Jafnan held eg hæsta ráð
bls.3–16
Viðm.ártal:≈ 1575
Flokkur:Rímur
Fyrsta ríma Ferskeytt
1. Jafnan held eg hæsta ráð,hvað sem mann vill enda, að biðja guð um nokkra náð nýta sér að senda.
2. Annars tekst á öngan vegáform neinna þjóða; það sem hefi með höndum eg, honum vil eg um bjóða.
3. Finnist nokkur neisti hérnýtur í kvæðum mínum, það guði einum þakki þér, er þetta veitir sínum.
4. Eg hefi hér við lítið laglagt á þetta kvæði að vanda svo um breyttan brag, beint sem efnið stæði.
5. Hrósun öngva ætla eg mérað auka í þessu neina, heldur öðrum gamna gjör, ef guð vill ekki meina.
6. Af mér rímur yrkjast smár,eina hef eg tilbúna, nema lýðum lítist skárr letinni undir fúna.
7. Misjafnt lof af mönnum fá,margan trú eg blekki; vondra lýða lastan má letja mig frá ekki.
8. Sérliga bið eg samt um heimmér sannmælis unna; hef eg ei tungu heft á þeim, sem hálfu betur kunna.
9. Einninn bið eg alla þess,sem eyrindin skrifa og læra, að láta ekki ljóða vess úr laginu neinu færa.
10. Skal eg við hvörn þann skilja til,sem skrifar að vilja sínum, að eg gjöri á öllum skil orðunum sjálfur mínum.
11. Og svo bið eg alla þátil illsku mér ei virða, þó eg segi sannleik frá um sýslan heimsins stirða.
12. Dragi sér enginn manna móðaf mínum brag til styggðar; þetta gjört er greindri þjóð til gleði, en ekki hryggðar.
13. Eg skal efna ævintýreitt í kvæðum mínum, hvörsu jafnan drottinn dýr dugnað veitir sínum.
14. Þeim sem elska og óttast hann,öllum heitir launum, yfirgefur aldri þann í hans háska og raunum.
15. Hefi eg því mest í minni lagtaf mörgum þessa eina historíu, sem mest er makt, í mínum kvæðum greina.
16. Hvör sem vill með hæversku sérhegða í orði og æði, setji þvílíkt sjónargler sér fyrir augun bæði.
17. Þar fyrir er það þeim ein synd,þetta má svo kalla, þessa ljósu, lifandi mynd láta úr minni falla.
18. Vér erum beðnir víst um þaðvísna smíð að greina; því skal byrja beint í stað brúðum frásögn eina.
19. Galisía gjörði einngöfugur kóngur stýra; Tíbúrtíus, herra hreinn, hét hans nafnið dýra.
20. Hélt hann frið og helgan rétt,heiðnar þjóðir deyddi, þar með grið og göfuga stétt, goðanna átrú eyddi.
21. Hans var kvonguð kónglig náð,á Kristum guðsson trúði; af Aragónía ítri láð ættaða fékk hann brúði.
22. Bar af hvörri mennt og mektmæt, er kóngurinn átti, kunni alla kurt og spekt, sem kvinnur prýða mátti.
23. Bæði voru þau góð og gegn,guðligan lifnað frömdu; aldri spurðist fegri fregn; á fróma alla tömdu.
24. Sín á millum svinnust einnson þau dýran gátu; Pontus hét sá hýri sveinn, er hjó oft vargi átu.
25. Blíður af þeim í breyttum salbar sem gull af eiri; af honum seinna segja skal; við söguna koma fleiri.
26. Í þennan tíma, það skal tjá,þeim sem hlýða vilja, Óríent stýrði soldán sá við söguna má ei skilja.
27. Að mekt og valdi var hann svo ríkurog veraldar góssi mestu, að enginn fannnst þar annar slíkur, átrú hafði vestu.
28. Lék við alla kristna kalt,kvaldi og rændi þjóðir, þar með drap og deyddi allt sem dýr eður vargar óðir.
29. Fjóra átti soldán sérsyni í þennan tíma, þar með vopn og valdan her, til víga fús að stíma.
30. Kóngur talar við sonu sín,so þeir allir hlýða: „Eg vil birta ætlan mín fyrir eyrum minna lýða.
31. Minn skal einn hinn elzti soneignast lönd og ríki; þrír eiga öngva þar til von, þó þeim illa líki.
32. Þrjátigi skal hvör þúsund mannsþiggja stríðs tilbúna, nauðþurft alla og annan fans með eyki gulli snúna.
33. Skip og góss sem gjald og menn,góðlig vopn og hesta, á meðan endast árin þrenn, ekki skal yður bresta.
34. Yðar hver skal sigla sér,so sem forlög standa; það væri kjör, ef kæmumst vér til kristinna manna landa.
35. Boðið trú á Machúmet,mun þess nafnið æðra; þraut eg slíka þegnum set, og þann tel eg æðstan bræðra.“
36. Þessu játa bræður beint,búast þaðan að halda, létu bera á borðið steint byrðir grænna skjalda.
37. Þrjátigi þúsund þriggja hvörþaðan úr landi hafði; skeyti og hernesk fór í för og flest það nauðsyn krafði.
38. Kvendið grét, en kættist vargur,kveinar í hvörju holti; hornið gall, er hélt so margur úr höfnum riddarinn stolti.
39. Úr höfnum burt að bryggju sporðurbrast og sjávar þilja; lenda mitt í löndum norður lýðir þessir vilja.
40. Undu segl við siglu trés;söng þá veður í reiðum; þeyttum munni byrinn blés báru elgs á skeiðum.
41. Tárast loft, en sveipast sólsorgar faldi brúnum; hættan vóx, en skorti skjól; skellur sjór að húnum.
42. Sterkir vindar vögnum sjósum vatna brautir óku; um síðir norður lýður ljós land fyrir stöfnum tóku.
43. Á hvörju helzt sem hugurinn stárog hjartans girndin stangar, þar til maður þetta fár, þolir hann raunir langar.
44. Frost og hita, sorg og sársigrar von þess góða, sé það heiður, sókn til fjár eður sætlig elskan fljóða.
45. Falla allir faldar trés;friðaðist reiðin græði; þornar sveitinn hesta hlés; hrinda vindar mæði.
46. Spanía kom að soldáns son,sá sem Pródus heitir, dró sér þá að vísu von að vinna kristnar sveitir.
47. Á Galisía gekk hann land,grimmur í brynju skærri, tuttugu mönnum beint í bland borg Sólógírem nærri.
48. Að fjórum hlutum frétti þá,er fann af byggðar mönnum: hvað landið hét og herra sá, hans að trúnað sönnum.
49. Þeir sögðu honum hið sanna til,sem að hann eftir frétti; þegar hann veit á þessu skil, þá frá landi setti.
50. Hann lézt mundi halda á braut,huldur gýgjar fiðri, kvaddi þá og kristnum laut, en kalt bjó undir niðri.
51. Ótrú sannast útlenzks hér,öngan skal því leyna; oftast hjartað ólíkt er orðum þeirra að reyna.
52. Fölsurum er það furðutítt,sem frómum lízt ei skarta; lætur einn sem bróðir blítt, býr þó illt í hjarta.
53. Lagði skipin leyni í,leitar ráðs við sína; fluttu stefnu þá með því þeir velja kaupmenn fína.
54. Biður þá öldin ekki prúðeigi lengi dvelja, segir, að þeir skyldu skrúð og skarlat látast selja.
55. Þar með sykur og silki frítttil sölu bjóða skyldu, flugél, guðvef, bjart og blítt boð síns herra fylldu.
56. Trúligt ráð þeir tempra þaðað taka svo að kveldi hús í þessum stóra stað, er sterka vörðu héldi.
57. Að morgni skyldu múra ámenn þeir heiðnu ganga, so liggja mætti í leyni hjá liðsfólk kóngs hið stranga.
58. Stigar skulu við stræti hvörtsterkir þá til greiða; ef þeir fá nú allt það gjört, eitthvað ber til veiða.
59. Þegar ráð er þetta statt,þá vill flest til sorgar; af skipunum tólf þeir skunda hratt skálkar heim til borgar.
60. Gjörðu rétt sem ríkur bauð,ráð síns herra fylldu, létust hafa allan auð, sem ýmsir kaupa vildu.
61. Sögðust vera Cípren afsendir menn til kaupa; hvör út þeirra gjaldið gaf, gjörðu margt að raupa.
62. Brynju allir bjarta þeirbera klæðum undir; drengir þess sem dimmir meir drekka á ýmsar lundir.
63. Nóttin sveipast himna hjúp,heldur ljós á flótta, stóran skugga dró yfir djúp, daginn myrkrið sótta.
64. Þarf ei lengja þetta spil,þanninn tókst að bragði; allt gekk það á einn veg til, eins og Pródus sagði.
65. Þegar vaktin var á brautvíst á múrnum gengin, heiðin þessa þjóðin naut; þá uggði manna enginn.
66. Þá voru komnir þúsund mannsþeirra heiðnu seggja saman í breiðan brodda krans borgar innan veggja.
67. Dagurinn kom, en renndi rauðreiðum sólin augum; hlakkar fold, þá fögur að bauð í fylsni myrkra draugum.
68. Horn var þeytt, en bumba börð,bilaði hjartað deigum; öll jörð skalf, þá aðsókn hörð aldur stytti feigum.
69. Þegar herlið höggva má,hjartað viknar móði; þeir vildu ei heldur vægja þá en vargar sauða blóði.
70. Myrtu og drápu einn veg alltunga menn og gamla; gjörist þeim kristnu geysivalt, ef guð vill ekki hamla.
71. Örva él að drífur dimmt;dýrar meyjar harma; vargar sóttu flokkum fimt fæðu sína varma.
72. Kóngur og drottning fregna fljóttfögnuð þrotinn mesta, í einum sal þau skrýðast skjótt; skerða heiðnir flesta.
73. Tíbúrt verst, en vill ei hannverða tekinn höndum; og mjög vel berst hinn mæti mann, móður í háska vöndum.
74. Kom þar loks, að kóngurinn hnékristinn dauður að velli; létu heiðnir liggja í hlé að leifa fleirum elli.
75. Dauði er vegur og leið til lífs,af löstum hjálpar sönnum, upphaf góðs, en ending kífs öllum kristnum mönnum.
76. Þreyttra hvíld og trega trausttel eg líkams dauða; gleðinnar lán og lífsins raust lausn er allra nauða.
77. Svo má sjá, að lukku lánlýði gjörir að pretta; þá varir minnst, í mestu smán menn að jafnan detta.
78. Því er hóf í heiðri beztað halda öllum mönnum, styggja ei þá veitir vest, en vera með drengskap sönnum.
79. Enginn má hér ósköp neinaf sér nokkur kaupa, ekki heldur gæfu grein gjöra á mis við hlaupa.
80. Efni valt hefur oss svo allteðli fest á hjóli; þó syngi snjallt, þá situr þó hallt sérhvör maður á stóli.
81. Drottning gat um dyr út hleypt,döpur af stórri mæði; einn hefur möttul yfir sig steypt, en ekki fleiri klæði.
82. Út á nokkurn eyðiskógmeð eina jungfrú vendi; eftir af sögunni enn er nóg ævintýr fyrir hendi.
83. Pontus kóngsson komst á brautog kapellán hans teiti dýrum fylgdi dreng með skraut, Damptenus að heiti.
84. Með honum voru í fylgd og förfjörutigi eðla barna; þessi vill með þýðlig svör þeim við dauða varna.
85. Héldu í fjalli hellir einn,höfðu öngva fæðu dagana þrjá; hinn dýri sveinn við Damptenum hóf so ræðu:
86. „Oss hæfir ekki hér til dauðsí hellir inni að svelta; vildi annað efni auðs uppi á hjóli velta.
87. Blíður guð mun bjarga ennburt úr angri nauða, so vér séum ei sjálfir menn sekir í vorum dauða.“
88. Presturinn bannar börnum þáí burtu þaðan að ganga, segir, ef hlaupa hellir frá, heiðnir muni þau fanga.
89. Prestur sleppti piltum þá,Pontus ráðin kéru, hlaupa síðan hellir frá; af heiðnum teknir vóru.
90. Dvínar ófróðum mínum móð,mest vend prestum senda; þín mun ljóð, hið fína fljóð, flest kennd bezt að enda.
91. Kvæða smíði hæfir hóf,hætti brátt að létta; fræðið líður, lofa eg próf lítt sé bætt um þetta. |