SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3127)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Pontus rímur 2Pontus rímur – önnur rímaBálkur:Pontus rímur
Fyrsta ljóðlína:Enn fer eg með annan slag
bls.17–28
Viðm.ártal:≈ 1575
Flokkur:Rímur
Önnur ríma Samhent
1. Enn fer eg með annan slagupp að byrja þennan dag, styðja á fætur fallinn brag og finna nýrra óðar lag.
2. Hér fer eg með kvæði káttað kynna yður á nýjan hátt, so þér mættuð sjálfir brátt sannar dygðir iðka þrátt.
3. Lít með innri augum áog eyrum heyr eg greini frá; meðan list að lærir þá langt eyrindi að þeim ná.
4. Þó eg segi sinni mitt,so vil eg allir gefi það kvitt, reiðist ei þó raunar hitt, að ræði fólk um álit sitt.
5. Það er ei hofmenn hugsast mér,þó hispri þeir í klæðum sér; og ei sá heldur með auðinn fer og alla dýrð, sem heimurinn lér.
6. Tveir eru menn í hvörjum hér;heilög skrift það greinir mér; ytri bæði og innri er, eflaust geym í minni þér.
7. Klæð þinn ytra og innra mannöllum dygðum á minn sann; þá mun þykjast heppinn hann, hvör sá maður þig prísa kann.
8. Læri hvör að sigra sig;son minn, viltú heyra mig; ráð er bezt þú þekkir þig; það er íþrótt prýðilig.
9. Sjálfs þíns blíða blekkja kann;bróðir, hugsa prettinn þann; hræsnin aldri heiður vann; hvörn guð þekkir lifandi mann.
10. Oft er í ljósi eyrir sá,sem undir snjónum fólginn lá, til lítils kemur á sjónum sjá að setja hús eður vindi á.
11. Allar dygðir andinn gaf;ei kann heimurinn segja af; þessar sömu í hirzlu haf, so hræsnin dragi ekki í kaf.
12. Þann eg held nú mestan mann,sem mótgang heimsins líða vann; sárar girndir ei sigra þann í sorg og gleði sér hegða kann.
13. Hann sem er glaður hvörninn snýst,með hófi tekur allt, sem býðst, lærir sig að sigra fyrst, af sorgum heimsins aldri lýst.
14. Þar með fróður að forðast vélog forsjá kunni hjartans þel, alla smán að umber vel; eg þann rétta styrkinn tel.
15. Falinn stendur, fátækur ríkur,fríður, ljótur reiknast slíkur; kvalinn, sæll og kóngum líkur, klæddur pelli, þó beri flíkur.
16. Fanginn laus, en lifir deyddur;lastaður prísast, ríkur sneyddur; veraldligur allur eyddur yfirvinnur píslum neyddur.
17. Líkaminn þá fallinn fraus,fékk sér sálin varmað hús; þá ytri er fanginn, innri laus, allra bezta frelsi kaus.
18. Þá hold er sterkt, en sálin sjúk,sínum verður að hlýða búk, þá er ekki þrælkan mjúk, þola má hans vald og brúk.
19. Þá má kallast sálin sæl,sér á hún fyrir líkam þræl, skipar honum djörf og dæl dygða veginn aftur á hæl.
20. Hugsa um það held eg skárrhvörn einn daginn síð og ár, jafnan hvar þú gengur og gár, gröf fyrir þínum fótum stár.
21. Valtur heimur virðist mér;veit það einn sá reynir gjör; elskum guð um allt fram vér; ekkert vissara en dauðinn er.
22. Annað birti eg öllum spil,þó á því kunni lítil skil; þeim mun heldur vera í vil eg víki aftur sögunnar til.
23. Þegar að sólin harmi hratt,hryggð af öllum skepnum datt, lifandi dýrin léku glatt, laufið út á blómi spratt.
24. Svo er varið sögunni hér;segja skal, hvör háttur er, hvörsu Pontus hegðar sér hjá heiðnum þjóðum sem honum ber.
25. Hann af öllum börnum bar,blíður í nauðum staddur var; af heiðnum neyddur höndum þar, hæverskt greiddi kóngi svar.
26. Kóngur býður börnum þáað birta sínu slekti frá, og hvörja iðju höfðu há, er herramönnum þéntu hjá.
27. „Erum fátækrar ættar vér.“einn þá Pontus kóngi tér, „ól oss Tíbúrt öll upp hér fyrir einn guð, so þér skiljið gjör.
28. Vér fæddum hunda og hauka hans,herra kóngur, og annan fans eftir sið hér innan lands, einninn boði stjórnarans.“
29. „Á yðrum klæðum og ásján máannað snið,“ kvað kóngur, „sjá; eg ætla hitt, sem enn skal tjá, að ættuð sé stórum herrum frá.
30. Eg vil bjóða börnum núbeint að láta af sinni trú; ef ekki dugir upptekt sú, á annan veg skal ráði snú.
31. Takið trú á Machúmet;mun það skást, eg þar til get; þetta boð eg börnum set.“ Blíð þau fyrir sér standa lét.
32. „Fanga munuð fremd af mér,ef fögnuð þennan kjósi þér; annars dauðann yður eg sver; er þá keypt að öllu verr.
33. Annars hagur er orðinn hrelldur;er sá heimskur slíku veldur; veljið, hvort þér viljið heldur; að vísu yðar makinn geldur.“
34. Enn réð Pontus anza þá:„Aldri göngum vér trúnni frá; í yðar valdi er sem má oss að leggja dauðann á.“
35. „Illa mun ganga á minn sannfyrir átrú ranga,“ sagði hann; „þér skuluð fanga fullvel þann, sem fæsta langa eftir kann.“
36. Riddari einn var kóngi kær,kvöld og morgna gekk honum nær; Patríces, það vitum vær, var hans nafn; sá lukku fær.
37. Hann nam trúa á helgan Kristheimugliga, með allri list, af heiðnum neyddur harðri vist; hafði fyrir það einörð misst.
38. Gekk fyrir kóng og gæfu bað,gerir so haga orðum að: „Náðugi herra, heyrið það, hvað eg til legg í annan stað.
39. Ef yðar þætti æðstri náðeins og mér um þetta ráð, hef eg að því gjörla gáð; gjörist að heyra þörfin bráð.
40. Eg vil taka börnin blíðbeint með mér á þessari tíð, undirvísa árla, síð, ef yðar trú þeim kennist fríð.
41. Ef það tekst á öngan veg,annað ráð skal sjá til eg; séu þau í þessu treg, þá tvímæli allt af dreg.
42. Þau skulu ekki gjöra oss grandné ganga lífs um nokkurt land; eg skal þeim hefna harðri hand, heiti eg því með tryggða band.
43. Eg skal fyrir þeim eitthvað sjá;aldri skulu þau lífi ná.“ Pródus kvað við kærligt já; kóngi síðan gengu frá.
44. Pontus og so öll börn smáóvænt þótti horfast á, ekki meintu annað þá en þau mundu dauðann fá.
45. Allsvaldandi einn guð er,um aldir sína miskunn lér, hjálpar þeim í hörmung fer, af himnum þeirra ánauð sér.
46. Riddarinn leiddi börnin bráttbeint með sér í húsið smátt, gjörði að hóta grimmu þrátt, ef gleymdu ei sínum tekna hátt.
47. Anza börnin öll á mót:„Ei vér hræðunst þvílík hót; vér tökum ei veika makt í mót; Machúmets trú er yfrið ljót.“
48. Riddarinn fann þau full með dygð,föst í trú fyrir utan blygð; þar af fékk hann fagra frygð og fagnar þeim án allri styggð.
49. Blíður spurði börnin þá,hvört borðað hefðu nokkrum hjá; honum hið sanna hermdu frá, að hungur liðu um dagana þrjá.
50. Drykk og fæðu gaf þeim greitt;guðsbörn ekki vantar neitt; er þeim nú með öllu veitt, sem eftir kann að verða beitt.
51. Börnin ræða beint um það,hvört bera skuli sig fæðu að: „Oss á að deyða öll í stað.“ En þau Pontus þegja bað.
52. Hann huggar þau og hermir þá:„Hjartans vinir, lítið á.“ Kvað í herrans höndum stá að hjálpa písl og dauða frá.
53. „Vér vitum það, að einn guð eralmáttugan játa ber; hann vora neyð og vanmátt sér; verum glaðir, hvað sem sker!“
54. Hrópa þá með hárri raustaf hjarta og munni efalaust, báðu guð með blíðri raust börnum sínum veita traust.
55. Riddara þóknast, rétt eg tel,ræða Ponto yfrið vel, baðst þá fyrir með blíðu þel, að börnin sláist ekki í hel.
56. Frá þeim víkur geysigreittgengur að sjó með fólk ei neitt; en ef fleira verður veitt, vænt hann keypti skipkorn eitt.
57. Bjó til skip og bera lét fljóttbjór og vín á þeirri nótt, um sig hafði heldur hljótt, honum var ei með öllu rótt.
58. Byr var nógur, en bilar ei rá;bjó til skip sem fljótast má, mat og drykk um mánuði þrjá; mun þeim endast kostur sá.
59. Í sínu valdi hafði hannheldur gamlan kristinn mann dagliga þenkja á dauðann vann, drottin lofa tíðum kann.
60. Honum í hendur börnin blíðbráðliga fékk á þeirri tíð, áminnandi árla og síð ekki dvelja langa hríð.
61. Leggja bauð í leyni eitt,lét þeim allt í hendur greitt; hamingju guð þá hefur þeim veitt, á haf út komust yfrið breitt.
62. Skipmann tók sér eina árog fyrir börnin þessi gár, er nú glaður, en ekki fár; efni í góðan punkt að stár.
63. Ungi Pontus anzar þáí annað sinn sem heyra má: „Góði vin, vér gjörum tjá guði lof þú ert oss hjá.
64. Göfgum hans guðligu náðgóða forsjá hefur oss tjáð; vort allt biðjum hann vernda ráð; vera mun til þess þörfin bráð.
65. Fær oss rétt í Flandern þú,til Frakka ríkis ella snú; það væri gæfa guðlig nú, góð ef tækist ætlan sú.“
66. Þessu játar skipmann skjótt,skipar þeim gleðjast öllum fljótt: „Vér höfum mat og vista gnótt, vor mun ætlan ganga ótt.“
67. Eðli Pontus heyrði hann,hvað þar talar hinn gamli mann; hjartað gleði og fögnuð fann; fyrir þá náð hann drottni ann.
68. Biður þau falla á bæði hné,blessuðum guði þakkir té; honum um aldir heiður sé, af hvörs manns tungu lofið ske.
69. Barnið hvört með blíðu geðbiðja þanninn fyrir sér réð, væri guðs það vilja með að vernda oss sá náð fær téð.
70. Síðan allt að settu traustá sannan drottin efalaust, sungu lof með sætri raust, af sorgum öllum gjörðust hraust.
71. Pontus sigldi af sagðri hafn,sjónar lét hann fljúga hrafn; honum er engi að heiðri jafn, hefur alltíð varandi nafn.
72. Vindur landi veik þeim frá,veðrið stóð í seglin há, ýta hlaut þeim aldan blá undan landi, fram á sjá.
73. Sinna feðra firrast dyr,fjölgar nauð og allan styr, staðir og lönd að stóru kyrr, steytti þau frá landi byr.
74. Látum mæta sigla um sjá,sátu að gæta stjórnar þá; káta vætir glýjan grá; gátu bæti hvör sem má.
75. Allir virða efnið mitt,orðgnótt stirða, en prísa sitt; ei mun eg hirða um þann kvitt, öngra byrða leita vítt.
76. Ef elska sjálfs að er í för,ei fæ eg á dómi kjör; sína fordild sækir hvör; svo eru flestra bræðra pör.
77. Vegsemd önga virðing ber;vanþökk heimur í staðinn tér; grandvarliga gæt að þér; guð himnanna allt að sér.
78. Líður á nátt, en lauka gáttlætur dátt til sængur brátt; lykta eg þátt á þennan hátt þiggja mátt og gjör þér kátt. |