Snjáfjallavísur hinar síðari | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Snjáfjallavísur hinar síðari

Fyrsta ljóðlína:Far niður, fýla, / fjandans limur og grýla
bls.85–94
Bragarháttur:Átta línur (tvíliður) AAAAAAAA
Viðm.ártal:≈ 1625
Flokkur:Særingar

Skýringar

Snjáfjallavísur hinar síðari í móti þeim síðara gangára á Snæfjöllum 1612.
Hátturinn á aðeins við um fyrstu vísurnar.
1.
Far niður, fýla,
fjandans limur og grýla;
skal þig jörð skýla,
en skreytin aursíla;
þú skalt eymdir ýla
og ofan eftir stíla,
vesall, snauður víla;
þig villi óheilla brýla.
2.
Bind eg þig til basta,
bróðir steinkasta,
lygifaðir lasta,
laminn í eymd hasta;
ligg þú í fjötri fasta
um fjögur þúsund rasta;
þar skal bistur brasta
í bölmóð heitasta.
Sný eg að þér bandi,
snauður djöfuls andi,
biturlegum brandi
þig bannfærandi,
gleipnir grandi
gegnmyrjandi;
þau atkvæðin standi
óbifandi.
Tröllaslagur
4.
Búkur strjúki burt vakur,
bolur óþolur, í holur,
marður, barður, meinsærður
meltist, smeltist, fráveltist;
dökkur, sökkvist djöfuls skrokkur
í dimmu stimmu þá rimmu;
okaður, slokið illskuhrak
hjá ödum, þeim fjöndum, í böndum;
nísti hann svo niður
nálægur kliður,
skemmdur, hrifinn,
skrykktur, hnykktur
skammar limur og liður
fyrir orðanna hniður
og ummælanna sniður.
Strengur
5.
Skarpt skal skot smíða
þér, skemmdin ófríða,
nísta þig og níða
fyrir nauðmagnan stríða;
skaltu nú héðan skríða
en skeinan ber svíða,
skakinn með háð hríða
í heljar gný víða..
6.
Eg býð þér víst víkja,
þú vesall djöfull díkja,
mun eg til málið mýkja,
þér meinhagyrðin ýkja;
þú þarft ei snauður sníkja,
snápurinn rauna ríkja,
óvins eftirlíkja,
eitruð skammar skríkja.
7.
Fúll fjandans bolur
fari í vítis holur;
angrist æ óþolur
hinn aumi heljar kolur;
Þær flæmist argar fýlur
um fjögur þúsund mílur,
skrattans skemmdar grýlur
skreiðist frá með ýlur.
Stefið
8.
Gegnum megna gauðragn
gangi fleinn, meinteinn óbeinn;
þig myrji, smyrji *mækir blár, [*mækir < makir í handriti]
mylji, hylji, frá skilji;
remma skammar rómgrimm
rjúki, strjúki svo fjúki;
í grunnið renni greyið senn,
gleypist, sneypist og steypist;
skaltu skjótt hrynja,
skemmdar forynja,
ofan í vítis afgrunnið, hin armasta linja.
Munu þá skauðin skynja
hve skeytin dynja.
–––– ––– –––
9.
Djöfull, þér bistur eg banna
bæinn og hús manna,
gegnrak grundanna
og grýting steinanna,
allra hlutanna,
elementanna,
skotbrögð skaðanna
og skelfinganna.
10.
Bresti nú í sundur
bölvuð djöfuls undur,
sökkvist heljar hundur,
hinn háðuglegasti kundur;
brenni títt sem tundur
*tramanns lymsku lundur;
kröftugur mærðar mundur
þig mæði, þrjósku þundur.
[*tramanns < tramann í handr. sem nmerkir djöfullinn]
11.
Meinsærður meiðist,
móður héðan skreiðist,
bölvanlegur bleyðist,
á brögðunum leiðist,
ragur fjandi reiðist,
raun þig á breiðist,
gatan í djúpið greiðist
og grunnið svart seiðist.
Stefið
12.
Særður, færður, svikharður
sendiár óklár í útkrár,
magnaður gegnum moldgögn,
mynd slæm, viðkvæm og voðanæm,
býinn flýi bölgrey,
banna eg, nefnilega neinn veg,
brögð lögð og *bylslægð,
braukið, slaukið sé lokið.
Fjandsamlegust fýla,
fljúgi á þig píla;
þú skalt fyrir þinn harka hrekk í helvíti hvíla.
Biturleg orð bíla
þig brytji, grimmdar grýla.
[*Byl slægð í handriti]
Málaversin
13.
Nú kemur níð,
nauða hörð hríð,
yfir djöflum diktað smíð
þá deyfi um ævitíð,
skemmdar andana hylji
hin harðasta helnótin flugvíð.
14.
Skemmdur skammar limur,
skrattanna þrunginn þrymur,
verði á vondum svimur,
víktu frá harka hrymur.
Stríðdjöfull bölvaður, steinkasta bróðir,
steypist ofan í vellanda vimur.
––– ––– –––
15.
Stritharður strangormur einn,
þig stingi flugnæmur fleinn;
far niður fjandi óhreinn,
fúaskrípið, níðlegur teinn,
bölskræfan beljandi,
bundin í helvíti,
mjög meinfastur,
niðurbarinn, bystur
og sem bjargfastur steinn.
16.
Heim stefni eg fjanda,
þeim helvíska anda,
gegnum láð landa
í löginn vellanda;
þeim skal viðju vanda
og versta brugg blanda.
Fastur í fjötri banda
skal flugormurinn standa.
17.
Bandagormurinn gleiði,
þig guðs son burt sneiði,
lymskur árinn leiði,
þig límdan á breiði.
Ryð eg þig burt með reiði,
ríf sundur og meiði;
belgdur sért með bleyði,
þig bæði særi og neyði.
18.
Helvískur hrökkvi,
héðan á burt stökkvi
raunadjöfull dökkvi,
svo dvíni ráðklökkvi;
satans limurinn sökkvi,
svikanna níðs nökkvi,
fjándur burt flökkvi
en falsið útslökkvi.
Stefið
19.
Skeyti heitu eg skotið læt
skrattans þegn í gegn með megn;
brenni, renni bölið inn
í breytinn, skreytinn, áleitinn;
ryttan gretta rými skjótt,
ragur fjandi, meins andi grýtandi;
um aldir haldist æ belldur
í eisu kreisu fyrir reisu
níðingurinn nauða,
nam við kauða,
skriðinn í vítis skringi *steit, [*steit svo í handriti]
sá skemmd er allra skauða,
djöfull í báli dauða
fyrir dreyrann Kristí rauða.
Málaversin
20.
Límdur, klemmdur, knúður,
köfunar andi óprúður,
hlaðist á heitur hrúður,
hart sé skakinn og dúður,
haldist það um aldir,
í þeim heljar herfjötrum
hann verði laminn og lúður.
21.
Bannsyng eg bölvan þá
í burt úr hverri krá,
djöflar þeir drífi frá
sem drjúg brögðin látast slá;
harðir skotfleinar hæfi þá
ef hingað vilja nokkurn tíma gá.
22.
Springi nú fyrir þrenningina þeir
og þrýstist niður úr leir,
þrádjöflar þessir tveir
þar á ei auki meir;
þaðan af enginn í þeirra stað komi;
þjóðin af þeim aldrei sjái
örmul, mynd eða óhreinan seyr.
Síðasta viðja
23.
Flugsærður fjandi
fari skríðandi,
vesall, veinandi
úr voru láðs landi;
vefjist að honum vandi
í viðju og járnbandi
af báli brennandi
með bölum vaxandi.
24.
Slótta árinn slyngi
slitni af láðs hringi,
eg bind þig svo í bingi
þú bærir á öngvu þingi,
þig stikkfleinar stingi
fyrir stórbrögð öll og kynngi,
hátt eg yfir þér hringi
og hvellum málm klingi.
25.
Nú sé fjötri festur
falsarinn sá vestur,
djöfull meinmestur
fyrir mærð og orðlestur
klemmdur niður og klesstur,
kyrr í stað sestur;
friðurinn bætist bestur
en burtu ógestur.
––– ––– –––
26.
Fjötra tötrum færi og nót
fúnum, lúnum, tilbúnum,
djöfla vafli, draugfífli,
frá dróttu með sóttu í óttu,
opið gloprist í djúp,
um ævi þá hæfi og kæfi,
skeytin heit fyrir skaða rót
þeim skelli, þá felli og velli,
þeim haldi gin gríðar
og gangviðjur stríðar,
enn séu bundnir árar þeir
til ævinlegrar tíðar
fyrir manna bænir blíðar
og bragarmynd þess sem smíðar.
Versin
27.
Nú ef nokkur ár
eða níðlegur andi óklár
byrjar brögð eða rjár
um byggðarmanna krár
bý eg þeim til brýnda fleina
fyrir blóðið Jesú hreina,
verði það slíkum slóttugum orðum
svo sem ein eiturpíla og ógræðandi sár.
28.
Gangdjöflar burt búist
frá byggð Snjáfjalla snúist,
hart að helormur þrúgist,
heit staðfastleg trúist.
Við heilagt blóð Jesú legg eg
að það ráð og ríki óhreinna anda
eyðist, rýist og rúist.
29.
Þau bannskeytin brotni í smátt
sem brögðóttir smíða þrátt
djöflarnir dag sem nátt,
þeir dreifist í hverri átt;
fyrir blóðuga Jesú sæla síðu
séu þeir allir alsærðir, yfirstignir.
Vor æðstur Emanúel
eyðileggur allan þeirra mátt.
Amen.
(„Snjáfjallavísur hinar síðari“. (Jón Þorkelsson bjó til prentunar). Huld II. (Önnur útgáfa) Reykjavík 1936, bls. 85–94).