Ein vísa | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Ein vísa

Fyrsta ljóðlína:Þrítugum var mér vitrað
bls.4
Bragarháttur:Dróttkvætt
Viðm.ártal:≈ 1600
Þrítugum var mér vitrað
að vanda ljóð Guði til handa,
lét eg þá Hugbót heita
hróður fyrst þann hinn góða.
Aumur var ungdómstími
áður fyrr, sem Guð náði.
Síðan kyn betri kvæða
kom í rím alla tíma.