Áttunda sunnudag eftir trínitatis | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Guðspjallasálmar Einars í Eydölum 56

Áttunda sunnudag eftir trínitatis

GUÐSPJALLASÁLMAR EINARS Í EYDÖLUM
Fyrsta ljóðlína:Vaktið yður og víkið
Bragarháttur:Átta línur (tvíliður) þríkvætt AbAbcDDc
Viðm.ártal:≈ 1600
Flokkur:Sálmar
Áttunda sunnudag eftir trínitatis
Evangelíum Matt. vij (15–23)
Með lag: Gæsku Guðs vér prísum
1.
Vaktið yður og víkið
villumönnum frá
svo yður ekki svíki,
sagði Jesús þá
við lærisveina sín:
Þeir koma í klæðum sauða
en klókt í huganum snauða
býr úlfa art óhrein.
2.
Af ávöxtum þá þekkið,
að þeirra hyggið sið;
vínber vaxa ekki
af vondum þyrnavið
né fíkja af fornu tré;
góð rót gefur hinn besta
en ill eik ávöxt versta,
svo trúi eg þeirra sé.
3.
Eik sú ei kann bera
ávöxt góðan skal
hratt upp höggvin vera
og henni fleygt á bál.
Í himnaríkið inn
ganga ekki allir
enn þó að Drottin kalli
nema verki viljann minn.
4.
Fyr vondum villuanda
vernda Drottinn mig;
lát mig stöðugan standa
og styðjast fast við þig;
gefðu mér guðlegt sinn,
orðin þín elska og læra,
ávöxt góðan færa,
leið svo til lífsins inn.
Vísan
1.
Villumenn varist þér alla,
vargar þeir sálum farga.
Kristur kvað þá flesta
í klæðum sauða læðast.
Illur ávöxtur allra
er það mark sem þeir bera.
Víst mun af vondum þistli
vínber enginn tína.
2.
Andi guðs sjálfur sendi
sína náð þeim Martínó
Lútheró að leita
lækningar kenningum
villudóms er vér allir
offrekt vórum í blekktir;
síðan Guðs orðið góða
gleðilegt oss nú téðist.
(Vísnabók Guðbrands 1612; útg. 2000, bls. 60–61)