SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3126)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Passíusálmar 42Það fimmta orð Kristí á krossinumBálkur:Passíusálmar
Fyrsta ljóðlína:Í sárri neyð / sem Jesús leið
Höfundur:Hallgrímur Pétursson
bls.39r–40r
Viðm.ártal:≈ 1650
Tímasetning:1659
Flokkur:Sálmar
Skýringar
Tón: Eins og sitt barn
1. Í sárri neyð,sem Jesús leið, sagði hann glöggt: Mig þyrstir – so ritning hrein í hvörri grein uppfylltist ein. Um það mig ræða lystir.
2. Strax hljóp einn aðsem heyrði það, hitta njarðarvött kunni; lét á reyrprik, drap í edik með ill tilvik og bar Jesú að munni.
3. Forundrast mámín sál þar á, maðurinn hvör þess gætir, að hann sem ráð hefur með dáð á himni og láð, hörmung þvílíkri mætir.
4. Hann, sá sem vínaf valdi sín úr vatni sætt tilreiddi, með sorgarskikk fékk súrt edik fyrir svaladrykk þá sárt hann þorstinn neyddi.
5. Því mundi ei hértil hlífðar sér herrann edikið líka sem vín ágætt gjöra vel sætt fyrst gat það bætt hans guðdómsmaktin ríka?
6. Komin var tíð,kraftaverk fríð Kristur ei gjöra skyldi. Hin stundin þá fyr hendi lá, hryggð, kvöl og þrá herrann vor líða vildi.
7. Kraftaverk hreinkenndu þá grein að Kristur Guðs sonur væri. En kvölin hans sýndi til sanns að syndugs manns sektir og gjöld hann bæri.
8. Guðs einkasongjörðist vor þjón þá græddi hann mein og kvíða. En offurlamb best hann orðinn sést fyr utan brest í því hann kvöl nam líða.
9. Af stríði því,sem stóð hann í, styrkleiki manns náttúru þreytast mjög vann því þyrsti hann, þáði vökvann þó af ediki súru.
10. Í annan staðmerk, maður, það og minnst þess hvörju sinni að herrann Krist hefur mest þyrst af ást og lyst eftir sáluhjálp þinni.
11. Ó, maður, núþenk þar um þú; þinn hugur blygðast skyldi. Guð þyrstir hér að hjálpa þér en hjarta þitt er óþyrst eftir hans mildi.
12. Heyr þú, sál mín,talar til þín tryggðabrúðguminn góði: Þyrstur eg er í hryggðum hér, so hjálpi eg þér úr hættu kvalanna flóði.
13. Ber honum síst,þess bið eg víst, beiskan drykk hræsnisanda. Orðin hans hrein á alla grein fyr utan mein óbrjáluð láttu standa.
14. Upp á orð þínsvarar sál mín, sorgin þó málið heftir: Sjálf þyrsti eg nú, þýði Jesú, og það veist þú þinni miskunnsemd eftir.
15. Ekki er hjá mérþað þyrstum þér þori eg nú fram að bjóða nema fá tár, trú veik, þó klár, sem til þín stár. Tak það og virð til góða.
16. Lof, dýrð sé þér,lausn fékkstu mér og lést þig so miklu kosta. Hjartað á ný huggast af því að eg er frí frá eilífum kvalaþorsta. Athugagreinar
Amen
|