SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3126)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Passíusálmar 35Um yfirskriftina yfir krossinumBálkur:Passíusálmar
Fyrsta ljóðlína:Útskrift Pílatus eina lét
Höfundur:Hallgrímur Pétursson
bls.34r–35r
Viðm.ártal:≈ 1650
Tímasetning:1659
Flokkur:Sálmar
Skýringar
Tón: Náttúran öll og eðli manns.
1. Útskrift Pílatus eina létyfir krossinum standa: Jesús nefndur af Nasaret, nýr kóngur Gyðingalanda. Drottni með sann dómarinn fann dauðasök öngva hærri. Margur las það í þessum stað því hann var borg so nærri.
2. Það var ritað og þanninn settí þrennslags tungumáli. Valdsmenn Júða það vissu rétt, vilja því Pílatus brjáli. Hann ansar greitt, ei skyldi neitt umbreytt og framar tjáði: Hvað skrifað er skal standa hér. So skeði af drottins ráði.
3. Þar nú á krossi herrann hékk,hér að, mín sála, gætum, virðingartitil fagran fékk með forprís sakleysis mætum, að hjálparfús heiti Jesús heimsins lausnarinn góði hvör djöfli frá oss frelsa má flekklaus með sínu blóði.
4. Nasarenus hann nefnist þar.Náttúruspilling manna fráskilinn einn að vísu var, vel þekka hlýðni sanna sýndi hann hreint ljóst bæði og leynt lifandi guði einum, hans tignar son, trúr, forsjáll þjón, tryggur í öllum greinum.
5. Kóngur Gyðinga klár og hreinní krafti guðlegum drottnar, sá Davíðs stól skal erfa einn, aldrei hans ríki þrotnar. Ísraels hrós, heiðinna ljós, heitinn forfeðrum lengi. Soddan titel sómdi rétt vel, sál mín, þinn herra fengi.
6. Soddan virðingu vildu hannvondir Gyðingar sneyða. Heiftaröfundin í þeim brann, af því Pílatum beiða orðtak það brátt á allan hátt úrfæra settum máta. Hann kvað við nei því það vill ei þeim drottinn veitast láta.
7. Dramblátum setur drottinn skammtmeð djörfung þeirra og hrekki. Þeim líðst svo sem hann lofar framt, lengra komast þeir ekki. Allt skal mitt traust efunarlaust á hans makt jafnan standa. Hvað munu mér þá mennirner mega í nokkru granda?
8. Í þrennslags tungum var þetta skráðþví að vor herrann mildi vildi sín elska, ást og náð allri þjóð boðast skyldi. Hvört tungumál með huga og sál heiðri þig, Jesú góði, sem kvölin þín og krossins pín keypti frá syndamóði.
9. Gefðu að móðurmálið mitt,minn Jesú, þess eg beiði, frá allri villu klárt og kvitt krossins orð þitt út breiði um landið hér til heiðurs þér, helst mun það blessun valda, meðan þín náð lætur vort láð lýði og byggðum halda.
10. Handskrift var ein yfir höfði mérhvör mína sálu grætti. Önnur stóð, Jesú, yfir þér sem angrið míns hjarta bætti. Jesú, þú ert útvalinn bert. Undir kóngsstjórnan þinni árla og síð um allan tíð óhætt er sálu minni. Athugagreinar
Amen
|