SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3126)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Passíusálmar 18Sú fyrsta áklögun Gyðinga fyrir PílatóBálkur:Passíusálmar
Fyrsta ljóðlína:Árla, sem glöggt eg greina vann
Höfundur:Hallgrímur Pétursson
bls.20r–21r
Viðm.ártal:≈ 1650
Tímasetning:1659
Flokkur:Sálmar
Skýringar
Með lag: Sælir eru þeim sjálfur Guð
1. Árla, sem glöggt eg greina vann,með Guðs son bundinn fara prestarnir so að píndist hann til Pílatum landsdómara. Í þinghús inn það sama sinn sagt er þó enginn kæmi so ekki meir saurguðust þeir. Sjá hér hræsninnar dæmi.
2. Inngang um húsdyr heiðingjanshéldu þeir synd bannaða. Saurgast á blóði saklauss manns sýndist þeim öngvan skaða. Heimsbörnum hér óvirðing er aumstöddum hjálp að veita. En Guðs orðs forakt, ágirnd og prakt engin misgjörð skal heita.
3. Pílatus sem það formerkt fékkfyrst ei þeim metnað sætti, án dvalar sjálfur út því gekk, embættisskyldu gætti. Sakargift þá vill fulla fá framborna af þeirra munni. Dáryrði fljót drambsemi á mót dómarinn gefa kunni.
4. Lát þér ei vera afmán að,ef þú vilt frómur heita, af Pílató ljóst að læra það sem loflegt er eftir að breyta. Ranglætið hans, þess heiðna manns, halt þér minnkun tvefalda. Þeim miður fer en honum hér, hvör vill þann kristinn halda?
5. Álitið stórt og höfðingshátthræðast skyldir þú ekki. Sannleiksins gæta ætíð átt, engin kjassmál þig blekki. Ærugirnd ljót, hofmóðug hót, hlýðir síst yfirmönnum. Dramblátum þar þú gef ansvar, þó byggt á rökum sönnum.
6. Öldungar Júða allra fyrstupp báru sök þrefalda: Fólkinu þessi frá snýr víst, fyrirbýður að gjalda keisarans skatt, það segjum vér satt, sjálfur vill kóngur heita og Kristur sá sem koma á kvittun og frið að veita.
7. Hér koma fram þau réttu rökræðu og þanka minna: Þér, Jesú, gefin var þreföld sök, það kann eg glöggt að finna. Þrefaldleg sekt mig þjáði frekt, þar um eg klagast mætti. Þrefalda styggð og þunga lygð þú leiðst með sögðum hætti.
8. Frásnúið Guði allt mitt ereðli og líf fáneyta. Öðrum því gef eg oft af mér illdæmi svo að breyta. En hér á mót með elsku hót öll Guðs börn rétt því trúa, frá bölvan, deyð, djöfli og neyð drottinn réð lýðnum snúa.
9. Guði átti eg að greiða frígjald, hlýðni og þakkarskyldur. Ranglega hef eg haldið því, höndlað sem þræll ógildur. Auðsveipnin þín fyr öllum skín, ástsemdarherrann kæri. Þú bauðst: Gefeð, gafst sjálfur með hvað Guðs og keisarans væri.
10. Sannlega hef eg hrokað mérhærra en vera skyldi, boð og skipun míns herra hér haldið í minnsta gildi. Kóngdóm í heim og heiðri þeim hafnaðir þú og flýðir. Hátignin þín á himnum skín, hún mun birtast um síðir.
11. Rægður varstu fyr ranga sök,réttláti Jesú mildi. Upp á það öll mín illskurök afplánuð verða skyldi. Áklögun sú sem þoldir þú, þess bið eg, herrann frómi, sé mitt forsvar þá finnst eg þar fyrir þeim stranga dómi. Athugagreinar
Amen
|