Önnur vísa –Með sama lag | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Önnur vísa –Með sama lag

Fyrsta ljóðlína:Herra Jesú, vor hjálparmann
bls.97–98
Bragarháttur:Fimm línur (tvíliður) fer- og þríkvætt aabbb *
Viðm.ártal:≈ 1600
Tímasetning:1612
Flokkur:Sálmar

Skýringar

Önnur vísa
Með sama lag
1.
Herra Jesú, vor hjálparmann,
heiðra lát mig velgjörning þann,
af allri ást og trú,
að veik manneskja vildir þú
verða borinn af hreinnri jómfrú.
2.
Guðdóms elskan þig þar til dró,
þessar tengdir svo undir bjó,
að eitt sáð yrðum vér
og óskabörn til arfs með þér,
af öllum heillum náðin sú ber.
3.
Engin tunga það útskýrt fær,
engla né manna firr eða nær
hvað mikil er miskunn þín,
að öll þú græddir afbrot mín
en á þig lagðir dauðans pín.
4.
Hvörsu má eg nú þakka þér
þessa elsku þú sýndir mér;
af reiðinni fékk eg frið;
sé þér lof mér sýndir lið
og sætt hefur mig föðurinn við.
5.
Hef eg í pant þitt hold og blóð,
herra, það er vor fæðan góð
í brauði og víni veitt.
Náðar innsigli er það eitt
og annað skírn en þriðja ei neitt.
6.
Testamentum það nýja nú
nefnir kristnin sem skenktir þú
henni á hryggðar stund,
Jesús minn, í ástarmund
fyr andlát þitt af tryggvastri lund.
7.
Sakramentum sá eiður er
að þú, Drottinn, oss sjálfur sver
að halda þín heitin góð
og leggur við þitt líf og blóð
að líkna og vægja kristinni þjóð.
8.
En vér sverjum í annan stað,
efna lát þú mig, Drottinn, það
af allri ást og dyggð,
við Guð og bræður bestu tryggð,
böl er ef reynist fals eða lygð.
9.
Auví, auví, minn Jesú kær,
angur og tregi mitt hjarta slær,
eg rauf svo oft minn eið:
fyr þína pínu og dapran deyð
drag þú mig nú á friðarins leið.