Vigfús Hansson Scheving d. 1817(erfiljóð) | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Vigfús Hansson Scheving d. 1817(erfiljóð)

Fyrsta ljóðlína:Í fyrndinni, þá vígöld var
bls.274
Bragarháttur:Átta línur (tvíliður) ferkvætt aabbccdd
Viðm.ártal:≈ 1825
Tímasetning:1819
1.
Í fyrndinni þá vígöld var
virtu menn blóðsúthellingar
og hemað fyrir hæstu dygð
hvervetna sem þó spilltu byggð.
Stríð var hetjunnar athöfn ein
— á öðru fæstir vissu grein —
bardagar, dráp og blóðug hefnd;
börnin eftir því voru nefnd.
2.
Heiti þau enn nú haldast við
hér í landi þó kristinn frið
inn hafi fyrir löngu leitt
laganna stjórn og vígum eytt.
Ættræknin lætur arfi jöfn
ættinni fylgja þessi nöfn
en heitið, eftir þýðing þess,
þrátt ómaklegan finnur sess.
3.
Til dæmis eg með trega syng
um tíðar vorrar þjóðmæring
veraldar allrar veg sem gekk,
Vigfús Scheving, hvers öllum þekk
umgengni, spekt og eðlishæð
er og lengst verður minnisstæð,
enginn því minnur vígfús var
en vinur þessi friðsemdar.
4.
Þá viðurkenning get eg greint
því gjör að hafði sjálfur reynt
hans milt og göfugt hugarfar
við hann þá nokkuð afgjört var.
Ég vil æ klökkur þekkja það
og þakka á öðrum hærra stað
að stakt góðmenni Vigfús var,
vottar þess finnast alls staðar.
5.
Aldrei hógværðar yfir stig
auðinn neitt lét hann hefja sig
og í yfirvalds staddur stétt
stjórnaði vel og dæmdi rétt;
ávann því hlýðni og ástar geð
allra þeirra sem fyrir réð;
með því hann öllum vildi vel
var honum auðsveipt hvers manns þel.
6.
Eins var prýðileg hússtjórn hans
honum staðfastur ærukrans,
heimilið allt með sóma sett,
siðferði í öllum greinum rétt.
Forsjón og röksemd fylgdust að,
framkvæmd mikilli komu af stað,
góðsemi var þar holl og hlý,
höfðu vel margir not af því.
7.
Honum samboðin höfðings frú
harmar ektamann látinn nú.
Háum dygðum og heiðri gædd
hjónum þessum eru fædd
afkvæmi þau sem ærurík
iðka foreldra dæmi slík;
hverjum kjör veittu tengda tvenn
tignustu landsins yfirmenn.
8.
Háöldruð loks af heimi gekk
hetja sú, öllum mönnum þekk,
því góðfús en ei vígfús var
sá viðumefni Schevings bar.
Það er fyrir minn óð um of
öldungs að syngja nafni lof
sem utan bæði og innan lands
elskar og heiðrar fjöldi manns.
9.
Honum sómir vel hetju nafn
í hugferði sem ætíð jafn
stillir hvervetna sinni sitt,
sá meðalveginn getur hitt,
tekur eins móti sorg og sæld
sem honum er af Guði mæld,
stökkur ei hátt þó styggður sé,
stundar meir eftir dygð en fé.
10.
Hetju slíka vér höfum misst
þá herra Scheving andaðist,
góðfrægur mjög því góðfús var
og gæddur dygðum margskonar.
Hans mannorð lifir, ætt og ást;
aftur munum vér glaðir sjást.
Innanbrjósts sér þá ósk og von
elur Jón prestur Þorláksson.