Fáein sálmvers | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Fáein sálmvers

Fyrsta ljóðlína:Minnast vil ég á miskunn þín,
bls.D8v (bls. 99–102)
Bragarháttur:Níu línur (tvíliður) fer- og þríkvætt aBaBccddB
Viðm.ártal:≈ 1750
Flokkur:Sálmar
1.
Minnast vil eg á miskunn þín,
minn drottinn óþrjótanda,
þú hefur verið hjálpin mín
í hvörs kyns neyð og vanda
samt hef eg boð þín bert
brotið og illa gjört,
forlát það, faðir kær,
fyrr en mig dauðinn slær
og gef mér iðrunar anda.
2.
Þú hefur sigrað alla einn
óvini sálar minnar,
á krossins gálga klár og hreinn
með krafti pínu þinnar.
Blóðdropar þínir þar
þægasta borgun var
fyrir mig, fallinn mann
í fordæmingar bann
af mergð miskunnarinnar.
3.
Fengið hefi eg fyrir það
frelsi, líf, heill og sóma,
andar fögnuð og allt annað
er yfir oss lætur koma.
Harmþrungnum hefur þú
heitið með sannri trú
endurnæringar nægð,
náð, frið og sálarhægð,
rituð sem orð þín róma.
4.
Þegar mig sorgin sækir heim
sé ég minn Jesú þína
andvarpan heita í eymdum þeim
er þig gjörðu að pína.
Huggar þá hjartað mitt,
herra minn, orðið þitt.
Bið eg þín blóðug sár,
blessuð og líka tár
afmái illgjörð mína.
5.
Þú hefur lofað, herra Guð,
hjálp og aðstoð að veita
þeim sem af ást í angurs-nauð
alvarlega þín leita.
Flý eg í faðminn þinn,
frelsarinn Jesú minn,
bevara þjáðan þjón,
það er mín hjartans bón,
og send mér huggun sæta.
6.
Þitt ok er sætt, þín byrði létt,
það mega allir játa,
þeir sem Kristí krossburðar stétt
kæra sér vera láta,
horfandi hvert eitt sinn,
hjartans unnusti minn,
bjóðugar benjar þín
og beiska vítis pín;
gott er með þér að gráta.
7.
Langar mig þína lífshöll í,
lausnarinn Jesú góði,
að eg með engla flokkum frí
fagran þér lofsöng þér bjóði.
Kom snart, eg kalla á þig,
Kristí! Bænheyr þú mig,
lát saurugan synda fans
sálar og líkamans
afþvost með þínu blóði.
8.
Láttu mig sjá og smakka nú
sætleik miskunnarinnar
andvarpandi af ást og trú
upp á kraft pínu þinnar.
Vertu hjá veikum mér,
vil eg ei sleppa þér,
þar til að þig fæ sjá,
þakkir og lofgjörð tjá
um ár eilífðarinnar.
9.
Meðan dvelur mildi Jesú
mína hérvist að enda,
þolinmæði með þýðri trú
þjáðum virðstu mér senda.
Líttu nú ljúft til mín,
langar mig heim til þín,
hvað sem að höndum ber
hjálp veittu, Drottinn, mér
og hjartað heilags anda.
10.
Gæskuríkasti Guð minn veit,
græðarinn allra meina,
að andvarpan mín í hryggðum heit
hreppi þá náð alleina,
að hjartað hrærist þitt
svo hressist lífið mitt
af mjúkri meðaumkan,
minn fyrir lausnarann
bjargi mér blóð hans hreina.
11.
Þegar endast mín ævistund
og að fer helið kalda,
veit mér þá sætan værðarblund
og vægð fyrir margfalda
kvöl, pínu og krossins deyð
sem Kristur fyrir oss leið,
síðan þér sjálfum hjá
sælu og vegsemd há.
Amen um aldir alda.