Um útleiðslu Kristí út þinghúsinu | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Passíusálmar 25

Um útleiðslu Kristí út þinghúsinu

PASSÍUSÁLMAR
Fyrsta ljóðlína:Landsdómarinn þá leiddi
bls.26v–27r
Bragarháttur:Átta línur (tvíliður+) þríkvætt:AbAbbCCb
Viðm.ártal:≈ 1650
Tímasetning:1659
Flokkur:Sálmar

Skýringar

Með lag: Konung Davíð sem kenndi

Fjórtánda vers er birt sem sjálfstætt kvæði að nafni „Son guðs“ í Skólaljóðum.
1.
Landsdómarinn þá leiddi
lausnarann út með sér,
Gyðingum andsvör greiddi
glögglega og so tér:
Þér sjáið þennan hér.
Sannlega yður eg segi,
sök finnst með honum eigi
sem dauðadóms verð er.

2.
Þá gekk Jesús út þanninn,
þyrni og purpurann bar.
Sagði: Sjáið hér manninn,
sjálfur dómarinn þar.
Gyðingar gáfu svar:
Burt með hann, so þeir segja,
sá skal á krossi deyja.
Ósk þeirra ein sú var.

3.
Orð og afsökun gilti
engin í þessum stað,
heiftin so hugann fyllti,
hjartað varð forblindað.
Síðast þeir sögðu það,
ljóslega lífsstraffs krefði
lögmálið því hann hefði
gjört sig Guðs syni að.

4.
Rétt lög, sem rituð finnast,
rangfærðu Júðar hér.
Oss ber þar á að minnast,
ill dæmi forðunst vér,
dómurinn drottins er,
hinn þó með heiftum klagi
og hreinan sannleik aflagi.
Sjái valdsmenn að sér.

5.
Þá eg heyri, minn herra,
hvörsu þú kvalinn vart,
gjörvöll vill gleðin þverra,
galstu mín næsta hart
því eg braut mikið og margt.
En þá mér guðspjöll greina
glöggt þitt sakleysið hreina,
hjartað fær huggun snart.

6.
Athuga, sál mín, ættum
útgöngu drottins hér
so við rétt minnast mættum
hvað miskunn hans veitti þér.
Hyggjum að hann út ber
þyrnikórónu þétta,
þar með purpurann létta,
blár og blóðugur er.

7.
Með blóðskuld og bölvan stranga,
beiskum reyrð kvalahnút
áttum við greitt að ganga
frá Guðs náð rekin út,
hrakin í heljarsút,
íklædd forsmánarflíkum,
fráskúfuð drottni ríkum,
nakin og niðurlút.

8.
Ó, synd, ó, syndin arga,
hvað illt kemur af þér?
Ó, hvörsu meinsemd marga
má drottinn líða hér?
Þitt gjald allt þetta er.
Blindað hold þig ei þekkti
þegar þín flærð mig blekkti.
Jesús miskunni mér.

9.
En með því út var leiddur
alsærður lausnarinn
gjörðist mér vegur greiddur
í Guðs náðarríki inn
og eilíft líf annað sinn.
Blóðskuld og bölvan mína
burt tók Guðs sonar pína.
Dýrð sé þér, drottinn minn.

10.
Út geng eg ætíð síðan
í trausti frelsarans
undir blæ himins blíðan
blessaður víst til sanns.
Nú fyrir nafnið hans
útborið lík mitt liðið
leggst og hvílist í friði,
sál fer til sæluranns.

11.
Dýrðarkórónu dýra
drottinn mér gefur þá.
Réttlætisskrúðann skíra
skal eg og líka fá
upprisudeginum á,
hæstum heiðri tilreiddur,
af heilögum englum leiddur
í sælu þeim sjálfum hjá.

12.
So munu Guðs englar segja:
Sjáið nú þennan mann
sem alls kyns eymd réð beygja
áður í heimsins rann,
oft var þá hrelldur hann.
Fyrir blóð lambsins blíða
búinn er nú að stríða
og sælan sigur vann.

13.
Þá muntu, sál mín, svara
syngjandi fögrum tón:
Lof sé mínum lausnara.
Lamb Guðs á hæsta trón
sigur gaf sínum þjón.
Um blessaðar himnahallir
honum segjum vér allir
heiður með sætum són.

14.
Son Guðs ertu með sanni,
sonur Guðs, Jesú minn.
Son Guðs, syndugum manni
sonararf skenktir þinn,
son Guðs, einn eingetinn.
Syni Guðs syngi glaður
sérhvör lifandi maður
heiður í hvört eitt sinn.


Athugagreinar

Amen