Um ráðstefnu prestanna yfir Kristó | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Passíusálmar 15

Um ráðstefnu prestanna yfir Kristó

PASSÍUSÁLMAR
Fyrsta ljóðlína:Mjög árla uppi vóru
bls.17r--18r
Bragarháttur:Átta línur (tvíliður+) þríkvætt AbAbCdCd
Viðm.ártal:≈ 1650
Tímasetning:1659

Skýringar

Tón: Krists er koma fyr höndum
1.
Mjög árla uppi vóru
öldungar Júða senn,
so til samfundar fóru,
fyrstir þó kennimenn.
Í ráðslag létu leiðast,
líkar það öllum vel,
hvörninn þeir gætu greiðast
Guðs syni komið í hel.

2.
Heimtu með heiftarlundu
herrann vorn til sín brátt,
orðsök því öngva fundu,
allir senn mæltu hátt:
Seg oss, ef ertu Kristur,
einasti son Guðs sá.
Græðarinn gæskulystur
gaf andsvar þar upp á:

3.
Þó eg það yður segi
ekki samt trúi þér,
andsvarið mér og eigi
ef eg spyr nokkurs hér.
Mannsins son sjáið sitja
senn hjá Guðs hægri hlið,
í skýi mun einu vitja
aftur með dýrðarsið.

4.
Ertu Guðs son? þeir sögðu.
Svaraði drottinn: Já.
Djarfir þann dóm á lögðu:
Dauða maður er sá.
Upp stóðu strax að stundu,
stríð þeim í hjarta brann,
frelsarann fjötrum bundu,
færðu Pílató hann.

5.
Hér máttu, sál mín, sanna
so gengur það til víst,
ástundan illvirkjanna
umhyggju vantar síst.
Árla þeir blundi bregða,
binda fast öll sín ráð,
klóklega hrekkjum hegða
hvör sem þess fengi gáð.

6.
En þú sem átt að vera
útvalinn drottins þjón,
verk hans og vilja að gera
og varast þitt sálartjón.
Andvara öngvan hefur,
umhyggjulítill sést,
við glys heims gálaus sefur.
Guð náði soddan brest.

7.
Margir upp árla rísa,
ei geta sofið vært,
eftir auð heimsins hnýsa,
holdsgagnið er þeim kært.
Sálin í brjósti sofnuð
sýnist að mestu dauð,
til allra dyggða dofnuð
sem drottinn helst þó bauð.

8.
Forsjónarverkmenn vísir
víngarði drottins í
fyrst þá dagsljóminn lýsir
ljúft bið eg gái að því.
Um sitt embætti hyggi,
árla gjörð bænin sé,
iðjulausir ei liggi
í líkamans gjálífe.

9.
Hatursmenn herrans vaka,
hugsandi að gjöra tjón.
Eftir því áttu að taka
ef ertu hans tryggðaþjón.
Viljir þú við þeim sporna
og varast þeirra háð,
árla dags alla morgna
við orð Guðs haltu ráð.

10.
Þenk nú í þínu hjarta,
þar næst í annan stað,
hvar um herrann réð kvarta,
hyggja máttu þar að.
Orðum hans ekki treystu
illgjarnir Júðar þeir,
úr spurning öngri leystu,
æ því versnuðu meir.

11.
Hvör trúir nú hart þó hóti
herrann forhertum lýð?
Allfæstir inna á móti
iðranarsvörin blíð.
Hirtingar hjálpa ekki,
heimur versnandi fer.
Blindleikinn trúi eg oss blekki,
búið straff nálægt er.

12.
Víst er eg veikur að trúa,
veistu það, Jesú, best,
frá syndum seinn að snúa,
soddan mig angrar mest.
Þó framast það eg megna
þínum orðum eg vil
treysta og gjarnan gegna.
Gef þú mér náð þar til.

13.
Mér er sem í eyrum hljómi
úrskurður drottins sá,
árla á efsta dómi
upp þegar dauðir stá.
Afsökun ei mun stoða,
andsvör né spurningar.
Sá stendur víst í voða
sem verður sekur þar.

14.
Hér er nú kostur að heyra
herrann talandi í náð.
Jesús opni mitt eyra
so að því fengi eg gáð.
Hógvær vors bata bíður,
blessaður þessa tíð,
annars heims er hann stríður
öllum forhertum lýð.

15.
Árla úrskurðinn lögðu
á þig Gyðingar þó,
Jesú, og sekan sögðu,
seldu þig Pílató.
Árla á efsta degi
afsökun gildir sú,
til dauða eg dæmist eigi,
drottinn, þess minnist þú.

16.
Árla dags uppvaknaður
ætíð eg minnist þín.
Jesú minn hjálparhraður,
hugsa þú æ til mín.
Árla á efsta dómi
afsökun vertu mér.
Minnstu þá, frelsarinn frómi,
hvað fyrir mig leiðstu hér.


Athugagreinar

Amen

(Sjá Passíusálmar 1996, bls. 83–87)