Um teiknin sem urðu við Kristí dauða | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Passíusálmar 46

Um teiknin sem urðu við Kristí dauða

PASSÍUSÁLMAR
Fyrsta ljóðlína:Þegar Kristur á krossins tré
bls.42v--43r
Bragarháttur:Sjö línur (tvíliður+) fer- og þríkvætt aBaBccB
Viðm.ártal:≈ 1650
Tímasetning:1659
Flokkur:Sálmar

Skýringar

Tón: Þá linnir hér mín líkamsvist
1.
Þegar Kristur á krossins tré
kannaði dauðann stríða
teikn og stórmerki mestu ske,
mælir so ritning fríða.
Musteristjaldið mjög umvent
í miðju varð að rifna í tvennt.
Hristist jörð harla víða.

2.
Sundur klofnuðu björgin blá,
byrgð leiðin opnast fóru,
líkamir dauðra lifna þá;
lít hér þau undrin stóru;
eftir lausnarans upprisu
inn í borgina vitjuðu,
af sumum þar sénir vóru.

3.
Hvað hér historían hermir rétt,
hygg að því, sál mín mæta.
Þér til lærdóms er það fram sett;
þess áttu vel að gæta.
Jörðin sjálf, þegar Jesús dó,
jafnvel þeir hörðu klettar þó
sýndu meðaumkun sæta.

4.
Steini harðara er hjartað það,
sem heyrir um Jesú pínu,
gefur sig þó þar ekki að,
ann meir gjálífi sínu.
Kann nokkuð soddan kalt hugskot
Kristí dauða að hafa not?
Guð stjórni geði mínu.

5.
Það má undra, hin þunga jörð
þreyði ei kyrru að halda.
Blágrýtis einninn björgin hörð
bresti liðu margfalda.
Holdið þó ei né hjartað manns
hryggist við pínu skaparans
sem hans þó hlaut að gjalda.

6.
Fortjaldið sýnir sannleik þann,
sundur þá rifna náði,
af takast skyldi öll fyr sann,
eftir Guðs settu ráði,
Gyðingakynsins kóngleg stjórn,
kennivaldið og lögmálsfórn
sem ritning sjálf um spáði.

7.
Hindrun réð öllum ærið stór
inn í Guðs ríki banna.
Því veldur syndasektin vór
og saurugleikinn verkanna.
En fyrir Jesú dýrstan deyð
drottinn tilbjó oss opna leið
héðan upp til himnanna.

8.
Hér í kristninnar helgidóm
höfum vér frelsi að ganga.
Þar boðast náð og blessun fróm,
burt er þá sorgin stranga.
Sálin vor hefur búna braut
beint í Abrahams gleðiskaut
eftir heims hörmung langa.

9.
Frelsarans dauða einninn að
önduð líkin hér njóta.
Guðlegur kraftur gjörði það,
grafirnar opnast hljóta
því drottins Jesú dauði á kross
dauðann sigraði fyrir oss,
afl hans og brodd nam brjóta.

10.
Merk að úr jörðu mátti ei neinn
maður frá dauðum standa
fyrr en tjáði vor herra hreinn
hold sitt aftur lifanda.
Fyrstur allra því uppreis hann
af eigin krafti og þar með fann
endurlausn oss til handa.

11.
Höfðinginn krossi herrans hjá,
hér með allt fólkið líka,
jafnsnart er soddan jarðteikn sjá,
játning þeir gjörðu slíka:
Sannlega hefur saklaus hann
og sonur Guðs verið þessi mann;
brjóst slá og brátt heim víkja.

12.
Fólkið, sem harða krossins kvöl
Kristó fyrst óska náði,
fann nú hið þyngsta í brjósti böl,
beiskleg samviskan þjáði.
Of hastarlegan úrskurð flý
ef þú vilt vera af sorgum frí.
Hætt er rasanda ráði.

13.
Dauðinn þinn, Jesú drottinn, þá
dýrlegan kraft út sendi.
Heiðnum manni so hér við brá,
hann þig Guðs son meðkenndi.
Ég bið gæskunnar geðið þitt,
gefðu við lifni hjartað mitt
að so frá illu vendi.


Athugagreinar

Amen

(JS 337 4to, bl. 42v–43r)

(Sjá Passíusálmar 1996, bls. 184–187)