Um það fyrsta rannsak fyrir Kaífas | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Passíusálmar 10

Um það fyrsta rannsak fyrir Kaífas

PASSÍUSÁLMAR
Fyrsta ljóðlína:Til Hannas húsa herrann Krist
bls.12r–13r
Viðm.ártal:≈ 1650
Tímasetning:1659
Flokkur:Sálmar

Skýringar

Með lag: allt mitt ráð til Guðs
1.
Til Hannas húsa herrann Krist
harðráðir Júðar leiddu fyrst.
Beisk, frá eg, bönd hann særi.
Honum strax þaðan vísað var,
viðtekt fékk ei né hvíldir þar
mjög so þó mæddur væri.

2.
Burt sendi því með beiskri pín
bundinn Kaífas mági sín
Hannas vorn herrann sæta.
Höfuðkennimanns hæstu stétt
hafði sá þetta árið rétt
Guðs lögmáls átti að gæta.

3.
Úr himnaríkis hvíldarstað
höfðum við, sál mín, forskuldað
út rekin víst að vera.
En Jesús tók nú upp á sig
ónáðan slíka fyrir þig.
Lof sé þeim ljúfa herra.

4.
Hjartað bæði og húsið mitt
heimili veri, Jesú, þitt,
hjá mér þigg hvíld hentuga.
Þó þú komir með krossinn þinn
kom þú blessaður til mín inn.
Fagna eg þér fegins huga.

5.
Kaífas hafði hér um spáð,
hentugast mundi þetta ráð
að dæi einn fyrir alla.
Embættis mælti andinn þar
af því hjartað ei vissi par,
sannleik Guðs sinnti varla.

6.
Balaams dæmi eins var eitt,
andagift sú var honum veitt,
spaklega tungan spáði.
Hann hafði í sinni hrekkjaráð,
hjartað fékk ekki sannleiks gáð
því hann fégirndin þjáði.

7.
Ó, Jesú, láttu aldrei hér
anda þinn víkja burt frá mér.
Leið mig veg lífsins orða
so hjartað bæði og málið mitt
mikli samhuga nafnið þitt,
holdsgirnd og hræsni forða.

8.
Til Kaífas voru komnir senn
kennivaldið og stjórnarmenn.
Biskupinn þegar að bragði
leitar andsvars til lausnarans
um lærisveina og kenning hans
en Jesús aftur sagði:

9.
Opinberlega en ekki leynt
í musterinu kennda eg beint.
Hvað spyr þú mig um þetta?
Kunngjöra mega þar um þér
þeir sem lærdóminn heyrðu af mér.
Þá láttu þig leiðrétta.

10.
Gæt að, mín sál, og sjáðu þar,
sonur Guðs undir rannsak var
krafður það kvöldið eina.
Á kvöldi hvörju því koma skalt,
kvöldreikning við þig sjálfan halt
með kvöldoffurs iðrun hreina.

11.
Þú, Guðs kennimann, þenk um það,
þar mun um síðir grennslast að
hvörninn og hvað þú kenndir.
Að lærisveinum mun líka spurt
sem lét þitt gáleysi villast burt.
Hugsa glöggt hvar við lendir.

12.
Jesús vill að þín kenning klár
kröftug sé, hrein og opinskár,
lík hvellum lúðurs hljómi.
Launsmjaðran öll og hræsnin hál
hindrar Guðs dýrð en villir sál,
straffast með ströngum dómi.

13.
Vangæslan mín er margvíslig,
mildasti Jesú, beiði eg þig:
Vægðu veikleika mínum.
Forsómun engin fannst hjá þér,
fullnaðarbót það tel eg mér.
Styrk veittu þjónum þínum.

14.
Eins er hér öllum einninn rétt
alvarleg kenning fyrir sett
að orð Guðs elski og læri.
Trúin innvortis efli geð,
einarðleg játning líka með
ávöxt hið ytra færi.

15.
Biskupsþjón einn í bræði þó
blessaðan Jesúm pústur sló,
so það ritningin segir.
Hógværlegt forsvar herrann gaf,
honum, sál mín, það lærðu af,
um sakleysi þitt ei þegir.

16.
Óvart samviskan Adam sló,
illan kinnroða fékk hann þó
í fyrsta falli sínu.
Þess vegna Jesús höggið hast
hlaut að líða og roðna fast
allra fyrst í hans pínu.

17.
Drottinn Jesú, eg þakka þér,
þetta leiðstu til frelsis mér.
Eg bið ástsemi þína:
Samviskuslögin sviðaskæð
á sálu minni þú mýk og græð,
burt taktu blygðun mína.


Athugagreinar

Amen