Um krossfestingarhróp yfir Kristó | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Passíusálmar 22

Um krossfestingarhróp yfir Kristó

PASSÍUSÁLMAR
Fyrsta ljóðlína:Frá Heróde þá Kristur kom
bls.24r--25r
Bragarháttur:Sex línur (tvíliður+) ferkvætt aabbcc
Viðm.ártal:≈ 1650
Tímasetning:1659
Flokkur:Sálmar

Skýringar

Tón: Faðir vor sem á himnum ert
1.
Frá Heróde þá Kristur kóm
kallar Pílatus snjöllum róm
Gyðingalýð og ljós gaf rök,
lausnarinn hefði öngva sök,
samþykkur væri og sér til þess
sjálfur kóngurinn Heródess.

2.
Sannlega drottinn sakleyseð
sér, elskar bæði og styrkir með.
Hjarta og munnur hvörs eins manns
hlýtur að þjóna vilja hans.
Málefnið gott fær góðan róm.
Gæt þess, mín sál, og vertu fróm.

3.
Siður Gyðinga sá var þá,
sakamann einn þeir skyldu fá
um páskatímann frá píslum frí,
Pílatus átti að gegna því,
í frelsisminning úr Egyptó.
Aldrei bauð drottinn soddan þó.

4.
Sjá til, mín sál, að siðvaninn
síst megi villa huga þinn,
forðast honum að fylgja hér
framar en Guðs orð leyfir þér.
Góð minning öngva gjörir stoð,
gilda skal meira drottins boð.

5.
Pílatus Júðum sagði svo:
Sjáið nú glöggt um kosti tvo.
Eg býð hér Jesúm yður fram
eða morðingjann Barrabam.
Hann meinti yrði helst með því
herrann frá dauða gefinn frí.

6.
Þú fær nú glöggt af þessu séð,
þar sem drottinn er ekki með
í verki, áformi og vilja manns
verða til einskis ráðin hans.
Sérviska holdsins svikul er
so sem Pílatum skeði hér.

7.
Yfirmennirnir allra fyrst
óskuðu að drottinn krossfestist.
Almúgann so í annan stað
eggjuðu mest að biðja um það.
Barrabas útlausn skyldi ske,
skilinn Jesús frá lífi sé.

8.
Veraldar dæmin varast skalt.
Voga þú ekki að gjöra það allt
sem höfðingjarnir hafast að
þó heimurinn kalli loflegt það.
Þá blindur leiðir blindan hér
báðum þeim hætt við falli er.

9.
Hvör þig eggjar á illverk bráð,
aldrei gakktu með þeim í ráð.
Vinn þú það ei fyrir metorð manns
að missa Guðs náð og vinskap hans.
Hvörugur annars bætir böl
þó báðir rati í straff og kvöl.

10.
Yfirmönnunum er því vant,
undirsátarnir hnýsa grannt
eftir því sem fyr augun ber,
auðnæmast þó hið vonda er.
Hvað höfðingjarnir hafast að
hinir meina sér leyfist það.

11.
Ill eftirdæmi á alla grein
eru samlíkt við mylnustein.
Viljir þú vera af fári frjáls
festu hann aldrei þér við háls.
Í Guðs ótta frá þér glæpum hrind,
góð vertu öðrum fyrirmynd.

12.
Húsfrú Pílatí holl gaf ráð.
Hefði hann betur að því gáð.
Góðar kvinnur þess gæti mest,
gjarnan ástundi dæmin best.
Abígail fær æru og sæmd,
illa Jessabel verður ræmd.

13.
Set eg það nú í sinni mér,
sæti Jesú, að gá að þér.
Allir hrópuðu allt um kring
yfir þig dauða og krossfesting.
Sem lamb meinlausast þagðir þú.
Þar af stendur mér huggun trú.

14.
Lögmálsins bölvan bitur og sterk,
banvænn djöfull og öll mín verk
þó hrópa vilji nú hvört um sig
hefnd og fordæming yfir þig,
nýt eg, minn Jesú, þín í því,
frá þeirra klögun verð eg frí.

15.
Áfellisdómsins ógnahróp,
ystu myrkranna vein og óp
aldrei mun koma að eyrum mín.
Eyrun blessuð því heyrðu þín
kalls og háreysti kringum þig,
frá kvöl og angist það frelsti mig.

16.
Hrópar nú yfir mér himinn og jörð
helgun, frið, náð og sáttargjörð.
Hvört sem eg geng nú út eða inn
í þínu nafni, Jesú minn,
bænarhróp mitt í hreinni trú
himneskum Guði þóknast nú.

17.
En þér til heiðurs allan tíð
englar drottins og kristnin fríð
hrópar nú bæði á himni og jörð
hósanna, lof og þakkargjörð.
Amen segir og upp á það
önd mín glaðvær í hvörjum stað.


Athugagreinar

Amen

(Sjá Passíusálmar 1996, bls. 110–115)