SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3127)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Passíusálmar 50Um varðhaldsmennina
PASSÍUSÁLMAR
Bálkur:Passíusálmar
Fyrsta ljóðlína:Öldungar Júða annars dags
Höfundur:Hallgrímur Pétursson
bls.46r–v
Viðm.ártal:≈ 1650
Tímasetning:1659
Flokkur:Sálmar
Skýringar
„Tón:“
Þar sem hér er aðeins nefnt „Tón“ en lags ekki getið mun eiga að merkja að sálmurinn sé „með sínu lagi“. Sjá einnig: Passíusálmar 1996, bls. 198–201. 1. Öldungar Júða annars dagsinn til Pílatum gengu strax, sögðu: Herra, vér höfum mest í huga fest hvað sá falsari herma lést.
2. Eftir þrjá daga ótt fyr sann,upp rísa mun eg, sagði hann. Við slíku er best að leita lags; lát geyma strax þessa gröf inn til þriðja dags.
3. Máske líkið með leyndum hljóttlærisveinar hans taki um nótt og lýðnum segi það lyga skin. Þá líst ei kyn, þó verði sú villan verri en hin.
4. Pílatus víst þeim var<ð>hald fékk.Vaktin strax út af staðnum gekk, gröfinni blifu herrans hjá og so til sjá, settu innsigli steininn á.
5. Gyðinga hörð var heiftin beisk,hjartans blindleiki og villan treisk. Þeim kunni ei nægjast kvöl og bann sem Kristur fann. Líka dauðan þeir lasta hann.
6. Forðastu soddan fíflskugreinframliðins manns að lasta bein. Sá dauði hefur sinn dóm með sér, hvör helst hann er. Sem best haf gát á sjálfum þér.
7. Gyðingar vildu veita rýrðvors lausnara upprisu dýrð. En drottins vald og vísdóms ráð þess vel fékk gáð, verk sitt framkvæmdi víst með dáð.
8. Hefði ei vaktin geymt og gættgrafarinnar, sem nú var rætt, orðsök var meiri að efast þá hvört upp réð stá drottinn vor Jesús dauðum frá.
9. En þeir sjálfir, og er það víst,upprisu drottins hafa lýst þó kennimenn Júða af kaldri styggð, kvaldir í blygð, keyptu þá til að bera lygð.
10. Öll svikráð manna og atvik illónýtir drottinn þá hann vill. Hans ráð um eilífð stöðugt stár og stjórnin klár. Slægðin dramblátra slétt forgár.
11. Hvíli eg nú síðast huga minn,herra Jesú, við legstað þinn. Þegar eg gæti að greftran þín gleðst sála mín. Skelfing og ótti dauðans dvín.
12. Sektir mínar og syndir barstsjálfur þegar þú píndur varst. Upp á það dóstu, drottinn kær, að kvittuðust þær. Hjartað því nýjan fögnuð fær.
13. Þú grófst þær niður í gröf með þér,gafst þitt réttlæti aftur mér. Í hafsins djúp, sem fyrir spáð finnst, þeim fleygðir innst. Um eilífð verður ei á þær minnst.
14. So er nú syndin innsigluð,iðrandi sála kvitt við Guð, eilíft réttlæti uppbyrjað í annan stað. Trúuð manneskja þiggur það.
15. Dauðinn þinn, Jesú, deyði hérdárlega holdsins girnd í mér. Gröfin þín hylji glæpi mín fyr Guðs augsýn. Efli mér styrk upprisan þín.
16. Steinþró míns hjarta úthöggvin sést.Heilagur andi vann það best. Líndúk trúar eg læt í té, minn lausnare. Ilmandi smyrsl iðrunin sé.
17. So finni eg hæga hvíld í þér,hvíldu, Jesú, í brjósti mér. Innsigli heilagur andi nú með ást og trú hjartað mitt, so þar hvílist þú.
18. Dýrð, vald, virðing og vegsemd hæst,viska, makt, speki og lofgjörð stærst sé þér, ó, Jesú, herra hár, og heiður klár. Amen, amen um eilíf ár. Athugagreinar
Amen
|