Samtal Kristí við lærisveinana | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Passíusálmar 4

Samtal Kristí við lærisveinana

PASSÍUSÁLMAR
Fyrsta ljóðlína:Postula kjöri Kristur þrjá
bls.5v--6v
Bragarháttur:Hymnalag: aukin stafhenda
Viðm.ártal:≈ 1650
Tímasetning:1659
Flokkur:Sálmar

Skýringar

Með lag: Einn Guð skapari allra sá
1.
Postula kjöri Kristur þrjá
í kvölinni sér að vera hjá,
bauð þeim: Vakið og biðjið víst,
bráðleg freistni so grandi síst.

2.
Strax sem Jesús um steinsnar nær
sté fram lengra, þess gætum vær,
allir sofnuðu sætt með ró.
Sjálfur herrann einn vakti þó.

3.
Áður var soddan um þig spáð,
ásett fram kom nú herrans ráð.
Þú hlaust Guðs reiðiþrúgu einn
þreyttur að troða, Jesú hreinn.

4.
Ef eg skal ekki sofna í synd,
so er náttúran veik og blind,
um steinsnar máttu eitt mér frá
aldrei, minn Jesú, víkja þá.

5.
Næturhvíldin mín náttúrlig
nóg er mér trygg þá veit eg þig
hjá mér vaka til hjálpræðess.
Hvört kvöld vil eg þig biðja þess.

6.
Þrisvar Jesús til þeirra fór
því að hann mæddi pína stór.
Hann bað Petrum með hýrri lund
hjá sér að vaka um eina stund.

7.
En hann sofnaði æ því meir
so ekki vissi hann né þeir
hvörju svöruðu honum þá.
Herrans pínu mjög jók það á.

8.
Mig hefur ljúfur lausnarinn
leitt inn í náðargrasgarð sinn,
vakandi so eg væri hér.
Vitni skírnin mín um það ber.

9.
Ungdómsbernskan, sem vonlegt var,
vildi mig of mjög svæfa þar.
Foreldrahirting hógværlig
hans vegna kom og vakti mig.

10.
Aldurinn þá mér öðlaðest
á féll gjálífissvefninn mest.
Kennimenn drottins komu þrátt,
kölluðu mig að vakna brátt.

11.
Fullvaxinn gleymskusvefninn sár
sókti mig heim og varð mjög dár.
Dimman heimselsku dróst að með,
dapurt varð mitt til bænar geð.

12.
Þá kom Guðs anda hræring hrein
í hjartað mitt inn sá ljóminn skein.
En í heimskunni so eg svaf,
sjaldan mig neitt að slíku gaf.

13.
Fárlega var mín fíflskan blind.
Forlát mér, Jesú, þessa synd,
hvar með að jók eg hugraun þér
en hefnd og refsing sjálfum mér.

14.
Láttu þó aldrei leiðast þér,
ljúfi Jesú, að benda mér.
Hugsi til mín þitt hjartað milt,
hirtu mig líka sem þú vilt.

15.
Vil eg nú hjartans feginn fá,
frelsari minn, að vaka þér hjá.
Andinn til reiðu er í stað,
of mjög holdið forhindrar það.

16.
Jesús unnti með ljúfri lund
lærisveinum að hvíla um stund
því hann vorkynnti þeim og mér.
Það eitt mín blessuð huggun er.

17.
Síðast allra þá sá hann þar
svikaralið fyrir hendi var,
bauð þeim: Vakið og biðjið best,
burt er nú værðartíðin mest.

18.
Soddan áminning, sála mín,
sannlega skyldi ná til þín
so þig ei skaði svefninn vær.
Svikarinn er þér ekki fjær.

19.
Dauðinn forræður fjörið þó,
fyrr en varði því margur dó.
Hann er í nánd þó sjáist síst,
sérhvörn dag er hans áhlaup víst.

20.
Dauðinn þá mætir dapur þér,
dóminn hefur hann eftir sér.
Djöfullinn bíður búinn þar,
í bálið vill draga sálirnar.

21.
Sjá þú vel til að soddan her
sofandi komi ekki að þér.
Í hreinni iðran því hvörn dag vak,
herskrúða drottins á þig tak.

22.
Bænin má aldrei bresta þig,
búin er freisting ýmislig.
Þá líf og sál er lúð og þjáð
lykill er hún að drottins náð.

23.
Andvana lík til einskis neytt
er að sjón, heyrn og máli sneytt.
So er án bænar sálin snauð,
sjónlaus, köld, dauf og rétt steindauð.

24.
Vaktu, minn Jesú, vaktu í mér,
vaka láttu mig eins í þér.
Sálin vaki þá sofnar líf,
sé hún ætíð í þinni hlíf.


Athugagreinar

Amen

(Sjá Passíusálmar 1996, bls. 36–41)