Fertugasti og sjöundi Passíusálmur | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Passíusálmar 47

Fertugasti og sjöundi Passíusálmur

PASSÍUSÁLMAR
Fyrsta ljóðlína:Kunningjar Kristí þá
bls.167
Bragarháttur:Fjórar línur (tvíliður) þríkvætt aaaa
Viðm.ártal:≈ 1650
Flokkur:Sálmar

Skýringar

Fertugasti og sjöundi passíusálmur
Um Kristí kunningja sem stóðu langt frá

Tón: Ó, Jesú, elskuhreinn
1.
Kunningjar Kristí þá
krossinum langt í frá
stóðu með þungri þrá,
þessa tilburði sjá.

2.
Var þar og viðstatt með
að vísu margt kvenfólkeð,
sár Jesú fengu séð,
sorgandi báru geð.

3.
Af þessu, mín sál, þú sér
sannlega hvörsu er
valt allt í heimi hér.
Haf slíkt í minni þér.

4.
Dvínar og dregst í hlé
á dauðastundunne
vinskapur, frændur, fé.
Fallvalt hygg eg það sé.

5.
Þó vildu vinirner
veita hjálp nokkra þér,
vörn þeirra ónýt er,
enginn dauðanum ver.

6.
Lífinu hjúkrar hönd
þá herðir sóttargrönd.
Hjálpa þó engin önd
upphugsuð ráðin vönd.

7.
Vinskap í synda sið,
sála mín, þess eg bið,
bittu ei veröld við
viljir þú sofna í frið.

8.
Hreinan vinskap halt þú
við herrann þinn Jesúm nú.
Í helgri hjartans trú
frá heimsins elsku þér snú.

9.
Hann einn má hjálpa þér
þá hjástoð mannleg þver,
heim þig á höndum sér
í himnasælu ber.

10.
Það hér í sannleik sést
er sonur Guðs andaðest,
sorgin þá særði mest
sem hann elskuðu best.

11.
Krists börn eru krossbörn,
við Kristum hlýðnisgjörn.
Hann sýnir þeim hjálp og vörn
þó hörð sé sútarkvörn.

12.
Þú skyldir þar að gá,
þó þeir stæðu langt frá,
allir samhuga sjá
son Guðs kross festan á.

13.
Komið svo, konur og menn,
að krossinum Jesú senn.
Þó nauðin þrengi þrenn
þar fæst nóg lækning enn.

14.
Kom þú, sál kristin, hér,
sem kross og mannraunir ber.
Settu fyr sjónir þér
son Guðs sem píndur er.

15.
Upp á hans heilög sár
horfi þín trúin klár.
Það mýkir trega og tár,
temprar allt sorgarfár.

16.
Sértu, syndugur mann,
særður um hyggjurann,
horfðu beint upp á hann
sem hjálp þér á krossi fann.

17.
Hvör sem eirorminn leit
af Ísraelsmanna sveit,
eitrið ei á þann beit,
öll stilltist plágan heit.

18.
So stór synd engin er
að megi granda þér
ef þú iðrandi sér
í trúnni Jesúm hér.

19.
Sé eg þig, sæll Jesú,
so sem álengdar nú.
Von mína og veika trú
við bið eg hressir þú.

20.
Þá eg sé sárin mín
særir mig hjartans pín.
En sárin þá sé eg þín
sorg öll og kvíðinn dvín.

21.
Lát mig, ó, Jesú kær,
aldrei svo vera þér fjær
að sjái eg ei sár þín skær
þá sorg og eymd mig slær.

22.
Veit mér, eg verði og sé
vin þinn og kunninge.
Þó hverfi heilsa og fé
hjálp mun þá nóg í té.

23.
Ég fel í sérhvört sinn
sál og líkama minn
í vald og vinskap þinn.
Vernd og skjól þar eg finn.


Athugagreinar

Amen

(Sjá Passíusálmar 1996, bls. 186–191)