Hvar ertu, líf? | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Hvar ertu, líf?

Fyrsta ljóðlína:Hvað ertu, líf?
bls.94
Bragarháttur:Sex línur (tvíliður) oAABBO
Viðm.ártal:≈ 1900
1.
Hvað ertu, líf?
Ertu hækkandi blævakin bára
gegn um brimrót í milljónir ára,
sem er áfram og upp á við knúin,
sem er eilífu frjómagni búin?
>Hvað ertu?
2.
Hvað ertu líf?
Ertu lækkandi, brestandi bóla
fædd í beljandi snúningi hjóla,
er að sæfangi hjaðnandi hnígur?
ertu hverfandi, slokknandi gígur?
>Hvað ertu?