1.
Flest hefur tæknin fjötrum reyrst
- finnst á helgum skjölum
að nú eru prestar - hefur heyrst -
hættir vítiskvölum.
2.
Og ef dæmið útleggst rétt
engu þarf að kvíða
auðmenn lenda í englastétt
aðrir dómsins bíða.
3.
Þegar ei varð þrælað og tórt
þá fannst mörgum skrítið
að Helvíti var heljarstórt
en Himnaríki lítið.