| Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Flokkar

Allt  (8843)
Afbrot  (7)
Afmælisvísur  (17)
Ástavísur  (46)
Bitavísa  (1)
Blönduós  (4)
Blönduvísur  (24)
Brúðarvísa  (2)
Búsæld/basl  (22)
Bæjavísur  (25)
Bændavísur  (10)
Daglegt amstur  (58)
Draumvísur  (9)
Drykkjuvísur  (28)
Eftirmæli  (43)
Ellivísur  (23)
Ferðavísur  (41)
Fjarstæður  (2)
Formannavísur  (10)
Gamanvísur  (61)
Gangnavísa  (17)
Gátur  (2)
Háðvísur  (17)
Heillaóskir  (16)
Hestavísur  (52)
Heyskapur  (2)
Hindisvík  (3)
Hólmavík  (2)
Húnaflói  (13)
Húnvetningur  (11)
Jónavísa  (2)
Kersknisvísur  (177)
Lífsspeki  (54)
Mannlýsingar  (55)
minningavísa  (6)
Nafnavísur  (4)
Náttúruvísur  (79)
Níðvísur  (23)
Oddi  (1)
Oft er . . .  (2)
Póesíbók  (2)
Saknaðarvísur  (44)
Samstæður  (1210)
Skáldaþankar  (153)
Sléttubönd  (1)
Strandamenn  (6)
Svarvísur  (5)
Söguvísa  (1)
Trúarvísur  (3)
Veður  (5)
Veðurvísur  (44)
Vetrarvísur  (6)
Vísnasmíði  (4)
Vorvísa  (7)
Þingvísur  (5)
AAAA19

Ekki er vert að ýfa mig til kvæða

Bls.107


Tildrög

Höfundur var landseti sr. Jóns Stefánssonar yngra í Vallanesi. Séra Jón kvæntist eigi fljótt og hafði bústýrur og líkaði honum misjafnt við þær. Eitthvert haust sendir prestur vinnumann sinn til Árna, líklega upp á landsskuld eða eitthvað jörðinni og þeim viðvíkjandi, sendi honum einnig miða með vísu á og mæltist til við sendimann sinn að fá svar til baka. Sendimaður gerir eins og lagt var fyrir hann. Hann kemur í Höfn, fær þar allgóðar viðtökur, lýkur erindi sínu og spyr Árna í því hvort ekkert bréf komi með sér til baka. Árni kvað nei við. Hinn spyr hvort hann ætli þá ekki að kveða eina bögu til prests. Árni kveðst eigi vita, samt ráði hann því hvort hann fær húsbónda sínum þessa bögu sem hér fylgir.
Ekki er vert að ýfa mig til kvæða
af presti þeim sem flengir fljóð
fær þó aldrei úr þeim jóð
sjálfur mun og sínum strokki bræða.