Hreppsstjórunum heiður ber
Bls.51
Tildrög
Grímur læknir, er líka var kallaður græðari, bjó fyrst að Möðrufelli og síðar á Krossanesi. Hann var og hreppsstjóri og hýddi í viðlögum eins og kveðið var um hann.
Hreppsstjórunum heiður ber
hýða þeir svo blæðir.
Þeirra mestur einn þó er
að hann slær og græðir.