Lækurinn | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Lækurinn

Fyrsta ljóðlína:Ég er að horfa hugfanginn
Viðm.ártal:≈ 0
Tímasetning:1925
1.
Ég er að horfa hugfanginn
í hlýja sumarblænum
yfir litla lækinn minn
sem líður fram hjá bænum.
2.
Ó, hve marga æskustund
áður hér ég dvaldi.
Saklaust barn með létta lund,
og leggina mína taldi!
3.
Bæ ég lítinn byggði þar
og blómum utan skreytti.
Yfir tún og engjarnar
oft ég læknum veitti.
4.
Nú er ekkert eins og fyrr
á öllu sé ég muninn:
liggja týndir leggirnir
og litli bærinn hruninn.
5.
Æskan hverfur, yndi dvín
allt er líkt og draumur.
Áfram líður ævin mín
eins og lækjarstraumur.
6.
Meðan æðum yljar blóð
og andinn má sig hræra
skal ég syngja lítil ljóð
læknum silfurtæra.
7.
Þegar eg er uppgefinn
og eytt er kröftum mínum
langar mig í síðsta sinn
að sofna á bökkum þínum.