Íslands þúsund ár | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Íslands þúsund ár

Fyrsta ljóðlína:Við sátum tvö og ein að eldi björtum
bls.267
Viðm.ártal:≈ 0
Við sátum tvö og ein að eldi björtum
- aftur ég lifi það að gamni mínu -
og fiðlan söng í feimnu máli þínu
og fiðlan söng í tveimur bernskum hjörtum.

Og allt var ljóð og rauðu rökkri vafið
og rökkrið grúfði djúpt í mínum barmi
og meðan sorgin svaf á þínum armi
við sigldum okkar hvíta bát á hafið.

Hlusta þú systir, draumlynd drjúp þú enni
dapurt á sundi kveður hæglát bára
- þrungin af trega þúsund týndra ára -
þjóðvísubrotin sem við kenndum henni.