Gangnaminning - tileinkuð Jóa í Stapa | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Gangnaminning - tileinkuð Jóa í Stapa

Fyrsta ljóðlína:Inn í fjallanna kyrrð, þá var förinni beint
Viðm.ártal:≈ 1975
1.
Inn í fjallanna kyrrð, þá var förinni beint
þar var frelsi og áhyggjum létt.
Þó að leið væri ströng, þá var loftið svo hreint
að við lofuðum klárunum sprett.
Þú varst með okkur þá og í loftinu lá
sem leiftur frá síðustu stöku
þær komu svo þétt og við kváðum þær rétt
í kofum á síðdegisvöku.
2.
Því við áttum þann sal, sem að almættið skóp
og aldrei var frá okkur tekinn.
Ég get ekki munað neinn glaðari hóp;
í göngum var aldrei neinn rekinn.
Þótt við lentum í hríð sem var leiðinda stríð
ég lengur man sólríka daga.
Ég vona það enn, þú með vorinu senn
vitjir um algræna haga.