Magnús Þórarinsson - flutt við jarðarförina 1917 | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Magnús Þórarinsson - flutt við jarðarförina 1917

Fyrsta ljóðlína:Nú kem ég hér að kveðja þig
Viðm.ártal:≈ 1925
Flokkur:Eftirmæli
1.
Nú kem ég hér að kveðja þig
minn kæri gamli vin.
Og gott er nú að gleðja sig
við genginna daga skin.
Ég vildi þau kynni þakka þér
eins þýtt og minn hugur til þín er.
3.
En þegar ég fyrsta sinn þig sá
mér sannlega skildist brátt
á glampa, sem yfir augun brá
að áttir þú töframátt
í sjón og hugviti sjáandans
og sálargöfgi hins spaka manns.
8.
Nú þynnist hið aldna afbragðslið
sem umbreytti landsins hag.
Með góðum minningum getum við
og glaðir hér kvatt í dag
einn þjóðnýtasta Þingeying
og þéttan og sannan Íslending.


Athugagreinar

Ort um Magnús Þórarinsson Halldórsstöðum í Laxárdal.