Haustvísur | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Haustvísur

Fyrsta ljóðlína:Brotnar alda. Bylurinn
bls.8
Viðm.ártal:≈ 1950
1.
Brotnar alda. Bylurinn
báru - faldar - línu.
Haustið kalda huga minn
hefur á valdi sínu.
2.
Gránar um hjalla mel og mó
minnkar fallegt gaman.
Bárur allan út um sjó
eruð að spjalla saman.