Fyrstu vordægur | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Fyrstu vordægur

Fyrsta ljóðlína:Ljósið loftin fyllir
bls.146-7
Viðm.ártal:≈ 1900
1.
Ljósið loftin fyllir
og loftin verða blá.
Vorið tánum tyllir
tindana á.
2.
Dagarnir lengjast
og dimma flýr í sjó.
Bráðum syngur lóa
í brekku og mó.
3.
Og lambagrasið ljósa
litkar mel og barð
og sóleyjar spretta
sunnan við garð.
4.
Þá flettir sól af fjöllunum
fannanna strút.
Í kaupstað verður farið
og kýrnar leystar út.
5.
Bráðum glóey gyllir
geimana blá
Vorið tánum tyllir
tindana á.