Jónas Hallgrímsson | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Jónas Hallgrímsson

Fyrsta ljóðlína:Þú sem áður foldarfljóð
Heimild:Heimaslóð.
bls.9. hefti 2009, bls. 27
Viðm.ártal:≈ 1850
Flokkur:Eftirmæli
1.
Þú sem áður foldar fljóð
fögrum ljóðum gladdir
og til hreysti hraustum óð
hugi drengja kvaddir
2.
hefur nú fljóða og hölda sál
hryggt úr öllum máta;
þeir sem íslenskt mæla mál
munu þig allir gráta.
3.
Úr fjörugu máli fegri sprett
fékk ei neinn af sveinum;
hjá þér bæði lipurt og létt
lá það á kostum hreinum.
4.
Þú gast látið lækjarnið
í ljóðum þínum heyra
sjávarrót og svanaklið
sanda bárur keyra.
5.
Gast í brag við björgin foss
bráðum látið sinnast
og hendingarnar heitum koss
hverja við aðra minnast.
6.
Náttúrunnar numdir mál
numdir tungur fjalla
svo að gastu stein og stál
í stuðla látið falla.
7.
Íslands varstu óskabarn
úr þess faðmi tekinn
og út á lífsins eyðihjarn
örlagasvipum rekinn.
8.
Langt frá þinni feðrafold
fóstru þinna ljóða
ertu nú lagður lágt í mold
listaskáldið góða.