Formannavísur | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Formannavísur

Fyrsta ljóðlína:Sigla reyðar sundið um
bls.25
Viðm.ártal:≈ 1850
1.
Sigla reyðar sundið um
svofnis heiða þórar
bylgjur greiðar boðunum
brátt að freyða stórar.
2.
Jón með kjörum Kaldbak frá
kænn í afla förum
stýrir snörum þegninn þá
þóftu birni rörum.
3.
Rögnis skýran runn ég tel
reyni, snýr að fróni.
Magnús stýrir mæta vel
mastra dýru ljóni.
4.
Jón um stranga lýsu lá
lundur spanga mætur
kugginn ranga Kleifum frá
kaskur ganga lætur.
5.
Vanur stjái seggur sá
sela knýr að fróni.
Friðrik knái Kleifum frá
kaðla stýrir ljóni.
6.
Lundur skýri linna fés
ljóst á ránar meyjum.
Loftur stýrir lungi hlés
lipurt heim að Eyjum.
7.
Álmabörinn Eyjum frá
ýtir siglu karfa.
Þorleifur um þorska lá
þórs með runna djarfa.