Ljóðsugan | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Ljóðsugan

Fyrsta ljóðlína:Yrki sjaldnast
Höfundur:Stefán Snævarr
bls.33
Viðm.ártal:≈ 2000
Yrki sjaldnast
fyrr en húma tekur
helst á stundu úlfsins
þegar aðrir sofa úr sér
vímu vinnunnar.

Sveipa mig skikkju
svíf út
að leita ljóðum mínum
blóðs.


Athugagreinar

Úr Greifanum af Kaos