Ásdís á Bjargi | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Ásdís á Bjargi

Fyrsta ljóðlína:Ásdís var í iðju og draumum
bls.146
Viðm.ártal:≈ 1925
1.
Ásdís var í iðju og draumum
ein um hitu þá
að elska ­ – og stuðla að Grettis gengi
og gæfu hans að þrá.
En vonir bæði og bænir hennar
barning vildu fá.
2.
Snemma kenndi mikla manninn
móðuraugað glöggt
sá í barnsins vögguvoðum
viðbragð hetjusnöggt
það var yndi­ – en annars vegar
örlögmyrkrið dökkt.
3.
Kvíðinn óx, og þrautir þyngdust
þegar hann komst á legg.
Stríðnin, hvefsnin, bernskubrekin
brýndu lýðsins egg. ­ –
Ein hún kveið og ein hún skildi
allt það skapahregg.
4.
Djásnafár úr föðurgarði
fór hinn sterki sveinn.
Heillaósk né afturkomu
orðaði þar ei neinn.
Með honum gekk á mikla veginn
móðurhuginn einn.
5.
Mót þó blási kaldar kyljur
kærleik minn þú átt.
En leys mig, son, frá logakvíða
um lífs þíns norðanátt.
Láttu´ ei hug minn harmi lostinn
heilsa hverri nátt.
6.
Undan skikkju brá hún brandi. –
Berðu’ ann lengi og vel
hans mun þurfa, en vænni vopna
verðan þig eg tel.
Still nú, frændi, storma þína
og stöðvaðu’ hin myrku él. – –
7.
En ísalög frá lífi Grettis
lögðust yfir Bjarg.
Með hverju ári og öllum fregnum.
óx það harmafarg.
Ásdís fann hvað undur litlu
ástin hennar barg.
8.
Vit og snilld og kappans kraftar
komu í sama stað –
þegar Grettis heiðahreysum
haustin lögðust að
fáir lýstu gleðiglampar
Glámur sá um það.
9.
Nístingsfrost og norðanbyljir
nauðuðu um hvert hans flet.
Öfund, svik og illvild manna
aldrei viku um fet. —
Ein á Bjargi allar nætur
Áadís bað og grét.
10.
Bar sú ást — og einvörðungu
útlaganum frið
og í vörn mót húmsins herjum
honum veitti lið.
Sá var eini Grettis geisli,
er Glámur réð ei við.
11.
Þyngst varð fórnin, er hún Ásdís
Illuga af höndum lét
svo að Grettis miklu myrkur
mættu þoka um set.
Aldrei hún í augsýn manna
áður né síðar grét.
*
12.
Þó að bili heimsins hylli
og heykist vinur hver
móðurástin býr á bjargi
og breytir aldrei sér.
Ásdís enn í völdum víða
vor á meðal er.